Búið að safna 17 milljónum fyrir Japan 25. mars 2011 14:45 Hamfarirnar lögðu heilu bæina í rúst.
Rauði krossinn í Japan hefur stóreflt neyðaraðgerðir sínar fyrir fórnarlömb hamfaranna miklu sem riðu yfir landið fyrir hálfum mánuði. Rauði krossinn sinnir allri heilbrigðisþjónustu á vettvangi og í fjöldahjálparstöðvum á hamfarasvæðunum þar sem nálægt þrjú hundruð þúsund manns eru enn. Í neyðarsveitum Rauða krossins eru einnig sérfræðingar sem veita sálrænan stuðning og áfallahjálp. Þá mun Rauði krossinn á næstu dögum vinna að bættum lífsgæðum þeirra sem þurfa að dvelja í fjöldahjálparstöðvum til langs tíma. Koma á upp heitum sturtum, dreifa hreinlætisvörum og bæta hreinlætisaðstöðu fólksins. Rauði krossinn hefur nú þegar dreift um 130.000 teppum til nauðstaddra auk annarra hjálpargagna. Fatnaði verður dreift á næstunni, með sérstakri áherslu á þarfir ungra barna. Rauði kross Íslands hefur safnað um 17 milljónum króna sem munu renna beint til hjálparstarfs Rauða krossins í Japan. Framlag íslenskra stjórnvalda nemur 10 milljónum króna, en almenningur hefur lagt fram um 7 milljónir króna. Ýmsir hópar sem tengjast Japan hafa lagt söfnun Rauða krossins lið, og er félagið ákaflega þakklátt fyrir stuðninginn. Enn er tekið á móti framlögum í söfnunarsíma Rauða krossins 904 1500. Þegar hringt er í númerið bætast 1500 krónur við næsta símreikning. Einnig er hægt að styrkja neyðaraðstoð Rauða krossins með því að greiða inn á bankareikning 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Sjá meira