Innlent

Stofnandi Napsters og álfadrottning á Íslandi

Sean Parker ku vera hér á landi.
Sean Parker ku vera hér á landi.
Svo virðist sem ólíklegustu stjörnur ætli að sækja landið heim á meðan Iceland Airwaves fer fram næstu helgi. Þannig hefur Vísir heimildir fyrir því að einn stærsti eigandi Facebook og stofnandi Napsters, Sean Parker, sé hér á landi ásamt Liv Tyler, leikkonu, sem varð frægust fyrir að leika álfadrottningu í kvikmyndunum Lord of the rings.

Þau voru stödd á sama tíma á skemmtistaðnum B5 í gærkvöldi en þar var einnig Sean Lennon, sem er sonur John Lennon heitins og Yoko Ono. Hún mun einmitt stíga á svið á Iceland Airwaves um helgina ásamt hljómsveit sinni Plastic Ono band. Hún var einnig heiðursgestur á Norrænum músíkdögum í Hörpu og ávarpaði gesti í Eldborg á laugardagskvöldið.

Framkoma hennar kom áheyrendum á óvart þar sem hún hafði beðið stjórnendur um að halda þætti sínum leyndum þar til stundin rann upp.

Fyrir þá sem ekki þekkja Sean Parker þá varð hann heimsfrægur eftir að ofurpoppstjarnan Justin Timberlake lék hann í kvikmyndinni The Social network sem greindi frá ótrúlegum uppgangi Facebook. Það var David Fincher sem leikstýrði myndinni.

Sjálfur sagði Parker að lífi hans hefði ekki verið rétt lýst í myndinni; raunveruleikinn væri mun leiðinlegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×