Gunnar Smári: Svandís á að segja af sér 13. febrúar 2011 13:13 Gunnar Smári Egilsson. „
Ráðherra sem misbeitir sínu valdi með þessum hætti á að segja af sér. Ráðherra verður að fara að lögum," sagði fréttamaðurinn Gunnar Smári Egilsson, í Silfri Egils þar sem rökrætt var um niðurstöðu Hæstaréttar Íslands sem komst að þeirri niðurstöðu á fimmtudaginn að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefði ekki verið heimilt að synja staðfestingu skipulags Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Það gerði hún á þeirri forsendu að Landsvirkjun hefði greitt kostnað viðkomandi sveitarfélaga vegna skipulagsvinnu. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem var einnig gestur í Silfri Egils, sagði greiðslurnar í raun ígildi múta. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ásakanirnar alvarlegar enda viðkomandi aðilar sakaðir um lögbrot. Hún aftók að svo væri og sagði ásakanir þess eðlis ómálefnalegar. Gunnar Smári sagði eðlilegast að Svandís segði af sér sem ráðherra og bætti við að það væri óþolandi þegar stjórnmálaflokkar færu á svig við lög vegna „æðri sjónarmiða," eins og hann orðaði það og benti í því ljósi á andstöðu ríkisstjórnarinnar við sölu HS Orku til Magma út af umhverfisverndarsjónarmiðum. Hann sagði alla þurfa að fara að lögum. Væru menn sérstaklega ósáttir við Hæstarétt, líkt með niðurstöðuna varðandi stjórnlagaþingið, ættu þeir að bregðast pólitískt við því í staðinn fyrir tuða undan honum, eins og Gunnar orðaði það. Mörður kom Svandísi til varnar og þvertók fyrir að hún hefði misbeitt valdi sínu. Hún hefði einfaldlega látið reyna á lögmæti þeirra vinnubragða Landsvirkjunar að greiða með þessum hætti fyrir undirbúningsvinnuna.
Mest lesið Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent Fleiri fréttir Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Sjá meira