Erlent

Sendi konu mynd af sér

Mál þróuðust hratt eftir að tölvupóstur með mynd fór á netið.
 fréttablaðið/AP
Mál þróuðust hratt eftir að tölvupóstur með mynd fór á netið. fréttablaðið/AP
Bandaríski fulltrúa­deildarþingmaðurinn Chris Lee sagði skyndilega af sér síðastliðinn fimmtudag. Daginn áður birti slúður­vefurinn Gawker tölvupóst sem hann sendi til konu með mynd af sjálfum sér berum að ofan. Konunni hafði hann kynnst á samskiptavefnum Craigslist þar sem hún hafði auglýst eftir kynnum við karlmann.

Lee sendi frá sér stutta yfirlýsingu þar sem hann bað fjölskyldu sína og kjósendur afsökunar á mistökum sínum, án þess þó að viðurkenna hvort eitthvað væri hæft í umfjöllun slúðurvefsins.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×