Goðsögn orðin til um Ronald Reagan 7. febrúar 2011 23:00 Reagan Reagan er meðal vinsælustu forseta Bandaríkjanna en Obama, núverandi forseti, er í hópi þeirra sem hafa lofað hann á síðustu dögum.
Ronalds Reagan var víða minnst í Bandaríkjunum í gær þegar hundrað ár voru liðin frá fæðingu hans. Reagan gegndi embætti forseta Bandaríkjanna frá 1981 til 1989 og er í dag í hópi vinsælustu forseta. Fjöldi sagnfræðinga hefur við þessi tímamót fjallað um arfleifð Reagans en mörgum þykir sem sú ímynd sem haldið er uppi af Reagan í dag eigi ekki endilega við rök að styðjast. „Repúblikanar hafa búið til ímynd af Reagan á þá leið að hann hafi verið á móti hinu opinbera," segir sagnfræðingurinn Douglas Brinkley sem ritstýrði útgáfu á dagbókum Reagans. „Reagan gerði frekar kröfu um hagkvæmni í rekstri ríkisins. Hann talaði aldrei um að leggja niður félagstryggingar eða draga verulega úr útgjöldum til heilbrigðismála, hans barátta snerist um að draga úr útgjöldum," segir Brinkley. Reagan hóf þátttöku í stjórnmálum eftir farsælan feril sem leikari í Hollywood og gegndi embætti ríkisstjóra í Kaliforníu áður en hann var kjörinn forseti. „Goðsögnin um Reagan er mjög einföld," segir blaðamaðurinn Will Bunch sem skrifað hefur bók um manninn. „Reagan var maður sem vann kalda stríðið, lækkaði skatta og bjargaði bandaríska hagkerfinu. Það gleymist hins vegar að hann hækkaði líka skatta og var tilbúinn til málamiðlunar væru menn honum ósammála."- mþl
Mest lesið Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Innlent Móðan gæti orðið langvinn Innlent Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Innlent Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Erlent Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Innlent Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Innlent „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig Innlent Fleiri fréttir Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Sjá meira