Forsetinn fjölgar utanlandsferðunum 8. mars 2011 07:15 Ólafur Ragnar Grímsson
Forseti Íslands var tæplega 80 daga á ferðalögum erlendis á síðasta ári og hefur verið 22 daga erlendis af 66 á þessu ári. Ferðadögunum fækkaði verulega í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 en hefur nú fjölgað aftur. Utanlandsferðum Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, er nú farið að fjölga aftur, en hann dró verulega úr ferðalögum í kjölfar bankahrunsins. Forsetinn hefur verið erlendis í 22 daga af þeim 66 sem liðnir eru af árinu. Forsetinn hefur verið þriðjung þess hluta ársins 2011 sem liðinn er erlendis. Hann hefur farið í þrjár ferðir sem staðið hafa í samtals 22 daga. Hann er nú staddur á Ítalíu eftir fund með Benedikt XVI páfa. Ólafur fór alls tólf sinnum af landi brott á síðasta ári, og var erlendis í samtals 79 daga samkvæmt samantekt Fréttablaðsins. Tíu ferðir sem stóðu í samtals 56 daga voru vegna opinberra erinda og kostaðar af skattgreiðendum. Tvær ferðir sem stóðu í alls 23 daga voru farnar í einkaerindum og greiddi Ólafur Ragnar allan kostnað við þær úr eigin vasa, samkvæmt upplýsingum frá embætti forseta Íslands. Á ferðalögum sínum í opinberum erindagjörðum á síðasta ári heimsótti forsetinn samtals tíu lönd. Hann fór þrisvar til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá heimsótti hann Austurríki, Grænland, Indland, Indónesíu, Kína, Portúgal, Rússland, Sviss og Svíþjóð það árið.Ferðalög forsetans á síðasta ári eru umtalsvert fleiri og lengri en árið 2009. Þá fór forsetinn í níu utanlandsferðir og eyddi 53 dögum í útlöndum. Þar af voru átta ferðir í opinberum erindagjörðum sem stóðu í 44 daga. Þegar forseti Íslands er erlendis fara forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar með forsetavald. Fyrir það fá þeir greiðslur frá embætti forseta Íslands, þriðjung af launum forseta hver. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárveitingum til forsetaembættisins. Þó utanlandsferðum forsetans hafi fjölgað aftur eru ferðalögin, dagarnir sem hann eyðir erlendis, ekki nálægt því að vera jafn margir og árið 2007, þegar hann var ríflega þriðjung ársins erlendis. Árið 2007 fór Ólafur Ragnar sautján sinnum til útlanda, þar af þrettán sinnum í embættiserindum. Samtals var hann 131 dag erlendis, þar af 106 við skyldustörf. Fyrri hluta árs 2008 sáust ekki miklar breytingar á ferðalögum forsetans. Ólafur fór tólf sinnum til útlanda árið 2008, þar af einu sinni í einkaerindum. Hann var samtals 91 dag erlendis, þar af ellefu á eigin vegum. Eftir bankahrunið í byrjun október 2008 fór hann aðeins einu sinni til útlanda það sem eftir var ársins, og það var í einkaerindum en ekki í opinberum erindagjörðum. Ólafur fór raunar ekki af landi brott í embættiserindum fyrr en í maí 2009 þegar hann sótti smáþjóðaleikana á Kýpur.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Fleiri fréttir „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira