Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segir að í apríl fái Króatar væntanlega að vita hvenær þeir geta gengið í Evrópusambandið.
Króatar hófu aðildarviðræður við Evrópusambandið árið 2005 og vonast til að fá aðild á næsta ári.
Orban segir að viðræðum ætti að ljúka í mars og dagsetning að liggja fyrir í apríl.
Ungverjar fara sem stendur með formennsku í framkvæmdastjórn ESB.