Innlent

Peningakassa með 100 þúsund krónum stolið af verkstæði

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Brotist var inn á verkstæði í Flötunum í Garðabæ um hádegisbilið í dag og þaðan stolið peningakassa með hundrað þúsund krónum í. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var rótað mikið á verkstæðinu en þjófurinn komst inn á verkstæðið með því að skrúfa upp glugga á hlið hússins. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Þá var brotist inn í bifreið í Háholti í Mosfellsbæ um klukkan tvö í dag. Rúða í bílnum var brotin og þaðan var GPS-staðsetningartæki stolið. Það mál er einnig í rannsókn hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×