Eiður: Leið strax vel inn á vellinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2011 10:15 Eiður Smári reynir að fylgja eftir vítaspyrnu Clint Dempsey. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali á heimasíðu Fulham að grannaslagurinn við Chelsea í gær hafi verið frábært tilefni fyrir frumraun sína með félaginu á heimavelli. Liðin skildu jöfn í markalausu jafntefli en Eiður Smári átti fína innkomu á síðustu tíu mínútum leiksins. Innkoma hans og Zoltan Gera gerði það að verkum að Fulham reyndi mikið á Chelsea síðustu mínúturnar. Liðið hefði getað tryggt sér öll stigin þrjú hefði Clint Dempsey skorað úr vítaspyrnunni sem hann fiskaði í uppbótartíma en Petr Cech varði frá honum. Eiður Smári var stutt frá því að ná frákastinu en allt kom fyrir ekki. „Það var frábær stemning á vellinum og það er frábært að fá sínar fyrstu mínútur á heimavelli í grannaslag eins og þessum. Það er þó synd að við skyldum ekki vinna leikinn í lokin," sagði Eiður Smári. „Mér fannst leikmenn vinna mjög vel í leiknum, sérstaklega í varnarleiknum og þetta var frábær reynsla þegar á heildina er litið." „Við leyfðum þeim þó að koma helst til of langt inn á okkar eigin vallarhelming á köflum en við vorum búnir að leggja mikið á okkur og vorum þreyttir." „En við sóttum á þá síðustu tíu mínútur leiksins og þá fengum við tækifæri til að vinna leikinn. Það var mikil synd að við skyldum ekki skora úr vítinu en við erum ánægðir með stigið. Það hefði þó verið skemmtilegt að taka öll stigin þrjú." „Mér leið vel um leið og ég kom inn á völlinn. Ég komst strax inn í leikinn, við héldum boltanum vel og færðum liðið framar." „Mér líst mjög vel á þessi félagaskipti hjá mér," bætti hann við en hann er í láni hjá Fulham frá Stoke til loka tímabilsins. „Ég hef notið mín síðan ég kom til Fulham og ætla að nýta mér þann tíma sem ég er hjá félaginu til fulls - hvort sem það verður til styttri eða lengri tíma." Fulham á næst bikarleik gegn annað hvort Wigan eða Bolton um næstu helgi. „Nú höfum við nokkra daga til að hvíla okkur og tel ég að við eigum góðan möguleika á því að komast enn lengra í bikarnum." „Við þurfum ekki að skammast okkur fyrir jafntefli gegn Chelsea, sérstaklega þar sem að við áttum möguleika á að vinna leikinn."
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Lækkaði launin til að upplifa drauminn Enski boltinn „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn