Erlent

Drengur í skólabúningi sprengdi sig í loft upp

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Tuttugu og sjö létust og margir slösuðuðust þegar ungur sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig í loft upp í Pakistan í morgun. Vitni segja að drengurinn hafi verið klæddur í skólabúning þegar hann gekk upp að herstöð í bænum Mardan og sprengdi sig.

Talíbanar eru áhrifamiklir á svæðinu en þó hefur dregið nokkuð úr árásum af þessu tagi síðustu misserin. Hermennirnir sem létust voru að gera leikfimiæfingar á torgi fyrir framan herstöðina þegar drengurinn lét til skarar skríða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×