Newt Gingrich sækist eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins 11. maí 2011 21:27 Newt Gingrich.
Repúblikaninn Newt Gingrich tilkynnti á samskiptavefnum Twitter í kvöld að hann ætli sér að sækjast eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til þess að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Hann er talinn álitlegasti frambjóðandinn af þeim sem hafa verið nefndir. Talið er að Gingrinch muni tilkynna formlega um framboð sitt á næstu tímum. Hann er 67 ára gamall og var forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Samkvæmt stjórnarskrá er forseti fulltrúadeildarinnar næstur í röðinni á eftir varaforseta Bandaríkjanna til að taka við stöðu Bandaríkjaforseta skyldi hann deyja, segja af sér, eða á einhvern hátt vera leystur frá störfum. Barack Obama hefur þegar hafið formlega kosningabaráttu sem fram fer á næsta ári. Repúblikanar lentu í hálfgerðum vandræðum þegar auðkýfingurinn Donald Trump steig á sjónarsviðið og sagðist íhuga að sækjast eftir útnefningu Repúblikanaflokksins. Hann fór mikinn í umdeildu máli í Bandaríkjunum þar sem hann efaðist um að Obama væri raunverulega fæddur í Bandaríkjunum. Að lokum opinberaði Hvíta húsið fæðingarvottorðið hans þar sem það kom skýrt fram að Obama fæddist á Hawai. Bandarískir miðlar eru í raun hættir að taka hugsanlegt framboð Trump alvarlega. Þá litu margir hýru auga til David Petraeus, hershöfðingja í Afganistan. En svo virðist sem Obama hafi séð við flokknum því hann réði hann sem yfirmann bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, á dögunum. Þá þykir líklegt að Mitt Romney muni einnig sækjast eftir tilnefningunni.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Erlent Fleiri fréttir Fyrsta fórnarlambið nafngreint Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Sjá meira