Saudi-Arabíska lögreglan handtók mann sem hafði drepið eiginkonu sína fyrir að smita sig af HIV veirunni.
Maðurinn, sem er upprunalega frá Eþíópíu, stakk konu sína margsinnis og losaði sig við líkið nærri höfn í borginni Jeddah.
Lögreglan fann manninn skömmu síðar. Hann játaði að hafa myrt konu sína eftir að hún hafði smitað hann af banvæna sjúkdóminum samkvæmt arabískum fjölmiðlum.
