Eyjólfur stendur við liðsvalið sitt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júní 2011 18:45
Eyjólfur Sverrisson stendur við þær ákvarðanir sem hann tók fyrir tapleikinn gegn Sviss í gærkvöldi. Liðið var langt frá sínu besta í leiknum og yfirburðir Svisslendinga lengst af algerir. Þeir unnu leikinn að lokum, 2-0. „Við vorum ekki á tánum í leiknum og það sáum við fljótlega. Menn voru hálf taugaveiklaðir og menn að missa boltann frá sér í einföldum snertingum. En ég er búinn að kíkja á leikinn og sá að það voru kaflar þar sem við spiluðum vel og vorum að útfæra sóknir okkar ágætlega. Við fengum eitt dauðafæri í fyrri hálfleik en svo dettum við niður aftur í hræðslu og óöryggi. Það er eitthvað sem við höfum ekki þurft að glíma við áður,“ sagði Eyjólfur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Seinni hálfleikur var mjög góður og mikli meiri kraftur og vilji í liðinu. Við höfum hins vegar ekki að sýna það í 90 mínútur, heldur bara af og til í þessum leikjum. Við þurfum að vera stöðugir, þá sérstaklega í okkar sóknaraðgerðum.“ Hann segist hafa velt fyrir sér hvort hann hafi valið rétta menn til að spila þennan leik. „Já, maður fer alltaf í gegnum það og skoðar hvað hefði mátt gera öðruvísi. Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni en maður verður að velja og ákveða eina útfærslu. Svo stendur maður með henni og ég tel að hún hafi verið rétt.“ Næsti leikur Íslands verður gegn Danmörku á laugardaginn og segir Eyjólfur að liðið ætli sér, eins og alltaf, að spila til sigurs. „Við þurfum að vinna minnst 3-0 til að komast áfram. Við þurfum því að sækja og vera ákveðnir fram á við. En Danir þurfa líka að vinna því þeir geta ekki leyft sér að treysta því að Svisslendingar klári sitt. Þetta verður því örugglega hörku sóknarbolti hjá báðum liðum. Það verður örugglega fullur völlur af áhorfendum og vona ég að það dugi til þess að strákarnir nái loksins að sýna sitt rétta andlit í 90 mínútur.“
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjá meira