Ofbeldið ekki refsivert í þriðjungi ríkja 25. nóvember 2011 06:00 Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, segir enga konu eða stúlku algjörlega óhulta fyrir ofbeldi. Það sé ljótur blettur á hverri heimsálfu og hverju landi. NORDICPHOTOS/Getty
603 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki skilgreint sem glæpur samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í skýrslu UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem vinnur í þágu kvenna og jafnréttis. Skýrslan nefnist Staða kvenna í heiminum: Leitin að réttlæti. Fjallað verður um skýrsluna á morgunverðarfundi íslensku landsnefndar UN Women í dag. Miklar breytingar hafa orðið á löggjöf í þessum málum á undanförnum árum. Í apríl á þessu ári var svo komið að 125 ríki höfðu samþykkt lög sem banna heimilisofbeldi, en aðeins 52 ríki hafa gert nauðgun innan hjónabands refsiverða. Í að minnsta kosti 127 ríkjum er nauðgun innan hjónabands því ekki talin glæpur. Í þeim ríkjum sem hafa gert heimilisofbeldi að glæp er tíðni þess lægri og færra fólki þykir ofbeldi gegn konum réttlætanlegt. Engin kona eða stúlka er algjörlega laus við þá hættu að verða fyrir kynbundnu ofbeldi. „Ofbeldi gegn konum og stúlkum er ljótur blettur á hverri heimsálfu, landi og menningu,“ er haft eftir aðalritaða Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, í skýrslunni. Skýrslan fjallar um margvíslegt misrétti og ofbeldi gagnvart konum sem viðgengst um allan heim. Í skýrslunni kemur fram að á síðustu öld hafi orðið gríðarlegar breytingar á réttindum kvenna en þrátt fyrir það upplifi milljónir kvenna lögin aðeins sem orð á blaði sem ekki leiði til jafnréttis og réttlætis. Lög sem mismuna og göt í löggjöf eru enn vandamál í öllum heimsálfum. Skýrslan sýni að þar sem lög og réttarkerfi virka vel geta þau verið mikilvæg tól fyrir konur. Konur sjálfar gegna lykilhlutverki í breytingunum eftir því sem fleiri konur eru löggjafar, dómarar, lögmenn og baráttumenn. Meðal úrbóta sem lagðar eru til í skýrslunni er að nota kynjakvóta til að fjölga konum á þingi, ráða fleiri konur í lögreglusveitir, auka aðgengi kvenna að dómstólum og sannleiksnefndum og setja kynjajafnrétti í forgang við þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira