Krampakennd leiftur úr biluðu ljósamastri 24. nóvember 2011 09:00 Mastrið á Eiðum „Ljósleiftrin fara úr takti og hending ræður hvenær og hvert þessara ljósa sendir frá sér leiftur í fullum styrk í svartamykri,“ segir Þórhallur Pálsson sem er orðinn langþreyttur á nábýlinu við langbylgjumastur Ríkisútvarpsins á Eiðum. mynd/þórhallur Pálsson „
Þetta er bara eins og hjá vitleysingum,“ segir Þórhallur Pálsson, arkitekt á Eiðum, sem sent hefur harðort kvörtunarbréf til útvarpsstjóra vegna mikils ónæðis af biluðum leifturljósum á langbylgjumastri Ríkisútvarpsins. Þórhallur segir mikinn og ótaktvissan ljósagang stafa af mastrinu sem er 220 metra hátt og var formlega tekið í notkun á Eiðum árið 1999. Þrjú leifturljós, hvert í sinni hæð á mastrinu, eigi að vera í takt og senda frá sér viðvörunarljós fyrir flugvélar. Ljósastyrkurinn eigi að vera mestur þegar bjartast sé en draga eigi úr honum eftir því sem rökkvi. Í bréfi sínu til RÚV undirstrikar Þórhallur að Héraðsbúar hafi áður margsinnis bent á ástandið á leifturljósunum. Í mars 2004 ræddi DV við Sigurð Ragnarsson, þáverandi formann umhverfisnefndar Austur-Héraðs. Sagði Sigurður mastrið oftast senda út á fullum styrk og ekki vera í takti. Reynt hafi verið að gera við en fljótlega sigið aftur á ógæfuhliðina. „Ljósin eru iðulega ekki í takti og auk truflunar við fólk er þetta ástand óþolandi ljósmengun,“ bókaði umhverfisráð Austur-Héraðs árið 2004 sem þá kvað árangurslausar ábendingar hafa verið sendar RÚV árin á undan. Þórhallur segir tímabil hafa komið sem ljósin voru í lagi. Oftast séu þau þó afar óstöðug og hreinlega stórfurðuleg í sínum krampakennda takti. „Alla jafna ef það gerir slyddu eða él þá fer þetta allt í vitleysu og ef það gerir þoku þá verður þetta eins og maður sé í þrumuveðri. Ég hef séð ljósmöstur víða um lönd en aldrei séð neitt þessu líkt,“ útskýrir Þórhallur sem kveður það þó „harmabót“ að hann búi næst allra við mastrið. Því fari hluti af ljósaganginum yfir höfuðið á honum. Alvarlegt sé að hin furðuleiftrin trufli ökumenn á Héraði. Þá hafi toppljósið verið bilað vikum saman í sumar. Umhugsunarefni sé hvaða áhrif slíkt hafi á flugöryggi. „Ef þetta blessaða mastur stæði úti á Seltjarnarnesi væri búið að gera eitthvað í málunum því þá væri fólk gjörsamlega á eyrunum út af þessu. Það er ekki nóg með að það sé ekkert hægt að gera í þessu varanlega heldur hefur aldrei verið beðist afsökunar því og það svíður mér mest,“ segir Þórhallur sem bíður nú svars frá Ríkisútvarpinu. Fréttablaðið náði ekki sambandi í gær við þá starfsmenn RÚV sem svara fyrir langbylgjumastrið á Eiðum.gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira