Skólum nú skylt að fyrirbyggja einelti 19. nóvember 2011 05:00 Oft eru frímínútur erfiðar þeim sem lagðir eru í einelti. Skýrt skal tekið fram að myndin tengist ekki efni fréttarinnar sérstaklega. fréttablaðið/gva
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út að allir grunnskólar skuli hafa heildstæða stefnu til að fyrirbyggja einelti. Sett verður á fót sérstakt fagráð í eineltismálum sem starfa mun á landsvísu og foreldrar eða skólar geta leitað til ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags. Þessi nýmæli er að finna í reglugerð mennta- og menningarmálaráðuneytisins um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, og er þar vísað til foreldra, kennara, nemenda, starfsfólks og stjórnenda. Reglugerðin hefur þegar öðlast gildi, og fellir út eldri reglugerð um skólareglur. Reglugerðin fékk lagastoð með breyttum grunnskólalögum frá því í vor. Viðmælendur Fréttablaðsins, bæði á vegum Sambands sveitarfélaga og annarra, eru þeirrar skoðunar að um tímamót sé að ræða. Í fyrsta skipti hafi eineltismálin fengið sess í lagaumhverfinu og mun ítarlegri reglur en áður verið settar um agaviðurlög og málsmeðferð slíkra mála. Skólastjórnendur og starfsmenn skóla ættu fyrir vikið að geta brugðist við af meira öryggi þegar slík mál koma upp, jafnframt því sem betra samræmi ætti að komast á viðbrögð skólanna við slíkum málum. Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins á Íslandi, segir nýja reglugerð tvímælalaust skipta miklu máli. „Hér er í fyrsta skipti kveðið á um réttindi og skyldur þeirra sem koma að þessum málum. Erfiðustu málin standa upp úr. Það hefur skort úrræði til að taka á þeim. Það er mikið fagnaðarefni að allir – skólinn, foreldrar og aðrir – geti rætt saman á jafnréttisgrundvelli með þennan vegvísi fyrir framan sig." Þorlákur bendir á að hugmyndin að fagráði á vegum ráðuneytisins sé ágæt en það megi ekki verða umsagnaraðili sem skili seint og illa af sér. Engin þolinmæði sé fyrir slíku hjá þeim sem glími við þessi erfiðu mál. „Þetta er reglugerðin með stóru erri. Hér er skýrt hvernig á að vinna," segir Þorlákur, sem telur ekki síst mikilvægt að foreldrum sé boðið að borðinu á jafnréttisgrundvelli. Í framhaldi af setningu reglugerðarinnar verða útbúin almenn viðmið um skólareglur í grunnskólum. Þá verða einnig gefnar út leiðbeiningar fyrir skóla um viðbragðsáætlanir vegna óásættanlegrar og/eða skaðlegrar hegðunar nemenda. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira