Múbarak lýsir yfir sakleysi sínu 4. ágúst 2011 04:15 Hosní Múbarak stríðir við veikindi og lá á sjúkrarúmi í járnbúri sakborninga. Mynd/AP
Hosní Múbarak, fyrrum forseti Egyptalands, kom fyrir rétt í gær þar sem hann lýsti sig saklausan af ákærum um spillingu og fyrir að hafa fyrirskipað dráp á mótmælendum í uppreisninni í landinu í febrúar. Um 850 borgarar létu lífið í árásum öryggissveita til að kæfa niður friðsamleg mótmæli. Múbarak, sem er 83 ára, hefur átt við erfið veikindi að stríða allt frá því að hann var hrakinn frá völdum. Hann lá á sjúkrarúmi sínu í járnbúri í réttarsalnum, eins og tíðkast í réttarsölum þar í landi. Þar voru ásamt Múbarak níu aðrir sakborningar, þar á meðal tveir synir hans sem eru sakaðir um spillingu. Réttarhöldin voru sýnd í beinni sjónvarpsútsendingu, en þetta er í fyrsta sinn sem Múbarak sést opinberlega síðan hann kom fram í sjónvarpi hinn 10. febrúar og sagðist ekki vera á leið að hætta. Hann hvarf úr embætti daginn eftir og hefur upp frá því dvalið í strandborginni Sharm-el-Sheik. Mannfjöldi safnaðist saman utan við réttarsalinn, flestir til að úthrópa Múbarak, en mikill þrýstingur hefur verið á herforingjastjórnina að láta forsetann svara til saka fyrir meinta glæpi sína. Réttarhöldin halda áfram hinn 15. þessa mánaðar. - þj
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Spurning með sálina Innlent Fleiri fréttir Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Sjá meira