Mannfjöldi fagnar flótta forseta Jemens 6. júní 2011 02:00 Mótmælendur veifuðu fánum og dönsuðu á götum Sanaa, höfuðborgar Jemens í gær.Fréttablaðið/ap
Þúsundir manna dönsuðu á götum Sanaa, höfuðborgar Jemens í gær og fögnuðu því að forseti landsins, Ali Abdullah Saleh, væri farinn af landi brott. Saleh mun hafa leitað sér lækninga í Sádi-Arabíu eftir að hann særðist í flugskeytaárás á forsetahöllina síðastliðinn föstudag. Í árásinni særðust margir háttsettir embættismenn í ríkisstjórn Saleh og ellefu verðir létu lífið. Ali Abdullah Saleh gekkst undir aðgerð á hersjúkrahúsi í höfuðborg Sádi-Arabíu, Riyadh, þar sem fjarlægð voru sprengjubrot úr brjósti hans. Þá hlaut hann bruna í andliti og á höndum. Þessar upplýsingar fengust hjá stjórnarerindreka í Jemen, sem sagði einnig að aðgerðin hefði gengið vel. Hann vildi ekki láta nafn síns getið, þar sem hann hafði ekki leyfi til að veita upplýsingar um líðan forsetans. Abed Rabbo Mansour Hadi varaforseti fer tímabundið með vald forseta í landinu að sögn Abdu al-Janadi ráðherra. Ráðherrann fullyrti einnig að Saleh forseti myndi snúa aftur og að hann væri við góða heilsu. Sjálfur hafði Saleh ekki gefið fyrirskipun um það að varaforsetinn færi með völd meðan hann dveldi í Sádi-Arabíu. Mannfjöldinn á götunum vonaðist samt sem áður til að þetta þýddi endalok hátt í 33 ára valdatíðar Saleh og veifaði fánum sem meðal annars letrað var á „Kúgarinn er farinn, fólkið verður kyrrt.“ Samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum hersins átti Abed Rabbo Mansour Hadi varaforseti fund með syni Saleh, hálfbræðrum hans og frændum í Sanaa á laugardag. Sú staðreynd að svo mikilsmetnir fjölskyldumeðlimir forsetafjölskyldunnar hafi orðið eftir í borginni, þykir benda til þess að forsetinn ætli sér að snúa aftur eða að sonur hans Ahmed, muni taka við. Þá óttast mannréttindasamtök að forsetafjölskyldan grípi til örþrifaráða og skilji landið eftir í rústum, finnist henni að sér þrengt. Margra vikna friðsamleg mótmæli snérust upp í harða bardaga milli stjórnarandstæðinga og stjórnarliða fyrir rúmlega hálfum mánuði. Talið er að yfir 200 manns hafi fallið í átökunum fram að þessu. Mjög hefur verið þrýst á Ali Abdullah Saleh að segja af sér af valdhöfum nágrannaríkjanna, sem óttast að ástandið í Jemen laði að öfl eins og Al Kaída.heida@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Fleiri fréttir Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Sjá meira