Erlent

Börn og unglingar meðal fallinna

Ísraelskir hermenn drápu 20 manns við landamæri Sýrlands í gær. fréttablaðið/ap
Ísraelskir hermenn drápu 20 manns við landamæri Sýrlands í gær. fréttablaðið/ap
Ísraelskir hermenn drápu yfir tuttugu og særðu yfir 200 manns er þeir hófu skothríð á hóp mótmælenda, hliðhollum Palestínu, sem reyndu að brjótast inn á yfirráðasvæði Ísraelsmanna á Gólanhæðum við landamæri Sýrlands í gær. Í fréttum ríkissjónvarpsins í Sýrlandi kom fram að börn og unglingar hefðu verið meðal látinna og særðra.

Í gær voru 44 ár síðan Sex daga stríðið braust út og Ísrael náði undir sig landsvæðum frá Egyptalandi, Jórdaníu og Sýrlandi. Mótmælendurnir veifuðu fána Palestínu og köstuðu grjóti og rusli að hermönnunum sem hófu skothríð eftir að hafa hrópað varnaðarorð að hópnum.

Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem slær í brýnu milli mótmælenda og hermanna á svæðinu en hundruð mótmælenda brutust yfir landamærin í síðasta mánuði og fóru inn á Gólanhæðir þar sem Ísraelski herinn tók á móti þeim.

Yfirvöld í Ísrael lofuðu þá að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. Þau ásaka nú yfirvöld í Sýrlandi um að skipuleggja aðgerðir mótmælenda, til að beina athyglinni frá blóðugum aðgerðum yfirvalda í Sýrlandi gegn uppreisn þar í landi. - rat




Fleiri fréttir

Sjá meira


×