Erlent

Grikkland fær viðbótaraðstoð

George Papandreou og Jean-Claude Juncker Forsætisráðherra Grikklands ásamt forsætisráðherra Lúxemborgar.fréttablaðið/Ap
George Papandreou og Jean-Claude Juncker Forsætisráðherra Grikklands ásamt forsætisráðherra Lúxemborgar.fréttablaðið/Ap
Gríska ríkið fær að öllum líkindum viðbótaraðstoð umfram aðstoðaráætlun Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Þetta varð niðurstaðan af fundarhöldum Grikkja með ráðamönnum og embættismönnum Evrópusambandsins, evrópska seðlabankans og AGS.

Skuldaskoðunarmenn þessara stofnana hafa farið ítarlega ofan í fjármál Grikklands, sem í vor fékk samþykki fyrir fjárhagsaðstoð upp á alls 110 milljarða evra, en það samsvarar rúmlega 18.000 milljörðum króna.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×