Erlent

Flóðahættan var vanmetin

Naoto Kan forsætisráðherra Japans sætti gagnrýni á þingi í gær.
nordicphotos/AFP
Naoto Kan forsætisráðherra Japans sætti gagnrýni á þingi í gær. nordicphotos/AFP
Kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að japönsk stjórnvöld og japanskir eftirlitsaðilar hafi vanmetið þá hættu sem steðjað hafi að kjarnorkuverum landsins vegna stórflóða í kjölfar jarðskjálfta.

Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu stofnunarinnar, sem lét kanna hvað fór úrskeiðis þegar alvarlegar skemmdur urðu á kjarnorkuverinu í Fukushima í kjölfar náttúruhamfaranna um miðjan mars. Stofnunin segir að flóðahættan sé enn vanmetin í viðbragðsáætlunum sjö annarra kjarnorkuvera í Japan.

„Þeir sem hanna og starfrækja kjarnorkuver ættu að leggja rétt mat á hættum vegna allra tegunda náttúruhamfara og setja upp varnir gegn þeim,“ segir í skýrslunni.

Að öðru leyti hrósar stofnunin Japönum fyrir rétt og vönduð viðbrögð í kjölfar hamfaranna. Þá segir í skýrslunni að framkvæmd brottflutnings fólks frá hættusvæðum hafi verið til fyrirmyndar.

Skýrslan verður birt í heild sinni á ráðstefnu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar í Vínarborg seint í júní.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×