Kominn í rammgert fangelsi dómstólsins 1. júní 2011 00:00 Þúsundir manna komu saman í gær í borginni Banja Luka í Bosníu til að mótmæla framsali Ratko Mladic til stríðsglæpadómstólsins. Nordicphotos/AFP
Ratko Mladic er kominn í fangelsi alþjóðlegs stríðsglæpadómstóls í Haag, þar sem hann verður leiddur fyrir dómara innan fárra daga. Hann var handtekinn í Serbíu á fimmtudag og framseldur í gær til Haag. Sextán ár eru liðin síðan þáverandi aðalsaksóknari dómstólsins ákærði hann fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni, meðal annars vegna fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995. „Mladic er ákærður fyrir alvarlegustu glæpina gegn mannkyni og alvarlegustu brotin á alþjóðalögum,“ sagði Snezana Malovic, dómsmálaráðherra Serbíu, í gær þegar Mladic var framseldur. Hún sagði Serbíu með þessu uppfylla alþjóðlegar og siðferðilegar skyldur sínar. Mladic var yfirmaður serbneska herliðsins í Bosníustríðinu árin 1992-95. Hermenn undir hans stjórn eru sakaðir um þjóðarmorð og fleiri stríðsglæpi á þessum tíma, þar á meðal morð á um 8.000 karlmönnum og drengjum við bæinn Srebrenica í júlí 1995 og ýmis voðaverk í tengslum við 44 mánaða langt umsátur um höfuðborgina Sarajevo. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir fórnarlömb þjóðarmorðsins,“ segir Munira Subasic, formaður samtaka þeirra sem lifðu af fjöldamorðin í Srebrenica. „Mladic er farinn og við trúum því að illskan heyrist á tali hans og hann muni segja sannleikann.“ Í Bosníu komu þúsundir stuðningsmanna Mladic saman í gær til að mótmæla framsali hans til stríðsglæpadómstólsins. Margir Serbar líta enn á hann sem þjóðhetju sem hafi barist hetjulega fyrir málstað þeirra í stríðinu. „Örninn er farinn en hreiðrið er eftir,“ stóð á skiltum sem sumir þeirra báru. Í gær, áður en hann var fluttur til Haag, fékk Mladic leyfi til þess að fara í stutta heimsókn að gröf dóttur sinnar í úthverfi Belgrad, höfuðborgar Serbíu. Hún stytti sér aldur árið 1994, þá 23 ára gömul, að sögn serbneskra fjölmiðla vegna þunglyndis í tengslum við þátttöku föður hennar í stríðinu. Mladic fór þangað í fylgd vopnaðra varða. Hann hafði lagt mikla áherslu á að fá að fara þangað, því hann hafði ekki getað heimsótt gröf dóttur sinnar meðan hann var í felum. „Við vorum með myndavélar þar og sólarhingsgæslu þannig að hann hefði örugglega ekki getað látið sjá sig þar,“ segir Vladimir Vukcevic, aðalstríðsglæpasaksóknariSerbíu. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Fleiri fréttir Sprenging eftir að gestir opnuðu út Íranir óttist „Sýrlandsvæðingu“ Vinna með yfirvöldum í níu löndum að bera kennsl á látna Fyrsta fórnarlambið nafngreint Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Sjá meira