Obama styður kröfur Palestínumanna 20. maí 2011 05:00 Bandaríkjaforseti hvetur Ísraela til að fallast á landamæri Palestínu frá 1967, en styður hins vegar ekki einhliða stofnun Palestínuríkis í haust. Hann telur sættir Fatah og Hamas torvelda friðarviðræður Palestínumanna og Ísraela. Mynd/AP
Barack Obama Bandaríkjaforseti styður kröfu Palestínumanna um að væntanlegt ríki þeirra miðist við landamærin eins og þau voru árið 1967, áður en Ísraelar hertóku Vesturbakkann og Gasasvæðið. Þetta kom fram í ræðu hans um málefni Mið-Austurlanda í gær. Þetta er stefnubreyting af hálfu Bandaríkjanna, því síðan 2004 hafa þau haft þá afstöðu að kröfu Palestínumanna um landamærin frá 1967 þurfi að laga að kröfu Ísraela um að öryggi þeirra verði tryggt. Bandaríkin hafa því til þessa í reynd verið á bandi Ísraela, sem vilja semja við Palestínumenn um endanlega legu landamæranna en ekki ganga út frá því fyrirfram að miða eigi við landamærin frá 1967. Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, brást við með því að ítreka þá afstöðu Ísraela, að landamærin frá 1967 séu óverjanleg. Ísraelar gætu ekki varið sig gegn árásum, verði þau landamæri notuð. Palestínumenn hafa í reynd gefist upp á viðræðum við Ísraela og fara nú fram á alþjóðlegan stuðning við einhliða stofnun Palestínuríkis í haust. Obama sagðist í ræðu sinni hins vegar ekki styðja þau áform, sem gætu aldrei orðið annað en táknræn: „Táknrænar aðgerðir, sem þjóna þeim tilgangi að einangra Ísrael á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í september, verða ekki til þess að sjálfstætt ríki verði til.“ Hann sagðist einnig líta svo á að sættir tveggja helstu fylkinga Palestínumanna, Fatah og Hamas, muni torvelda friðarviðræður við Ísraela. Ísraelar hafa væntanlega einnig orðið fyrir vonbrigðum með að Obama notaði ekki tækifærið til þess að fordæma Íran harðlega í ræðu sinni. Hann sakaði Írana hins vegar um hræsni og ítrekaði andstöðu Bandaríkjanna við kjarnorkuvopnaáform Írans og stuðning Írana við hryðjuverkasamtök. Annars eyddi hann ekki mörgum orðum á Írani, lét nægja að segja afstöðu sína vel þekkta og dró ekki upp þá mynd af Íran, sem forveri hans í embætti gerði stundum, að Íran væri ljótasti skúrkurinn í Mið-Austurlöndum. Þess í stað varði hann töluverðum tíma í að hvetja stjórnvöld í Barein og á Sýrlandi til þess að hætta að beita ofbeldi til að kæfa niður mótmæli. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira