Bráðabirgðastjórn á herteknu svæðunum 30. apríl 2011 06:00 Ismail Haniya Leiðtogi Hamas-samtakanna á Gasasvæðinu hélt blaðamannafund að loknum föstudagsbænum múslima í gær, tveimur dögum eftir að samkomulag tókst við Fatah.nordicphtos/AFP
Leiðtogar tveggja helstu fylkinga Palestínumanna, Fatah og Hamas, stefna á að hittast í Kaíró á þriðjudaginn í næstu viku til að undirrita og staðfesta sögulegan samning þeirra, sem kynntur var á miðvikudaginn. Samningurinn felur í sér samstarf Hamas og Fatah um bráðabirgðastjórn á herteknu svæðunum, bæði Vesturbakkanum og Gaza. Þá er stefnt að kosningum innan árs. Samkvæmt samkomulaginu verður Mahmoud Abbas, leiðtogi Fatah, áfram forseti Palestínustjórnar fram að kosningum. Palestínumenn virðast ekki gera sér neinar vonir um friðarsamkomulag við Ísrael á næstunni og stefna að því að óska næsta haust viðurkenningar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á sjálfstæðu Palestínuríki. Abbas sagðist þó í gær koma strax til að ræða við Ísraela, bjóði þeir honum til viðræðna, en þó með því skilyrði að framkvæmdir tengdar ísraelskum landtökumönnum verði stöðvaðar. Ísraelskum stjórnvöldum líst hins vegar ekkert á blikuna og segja að Abbas hafi nú gengið til liðs við hryðjuverkamenn, vegna þess að Hamas hafi það enn á stefnuskrá sinni að eyða Ísraelsríki. Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína, segir að Hamas-samtökin hafi þó í reynd viðurkennt tilverurétt Ísraelsríkis. „Palestínska þjóðin og öll stjórnmálaöfl hennar, þar með talin Hamas, hafa lýst yfir vilja til að stofna sjálfstætt ríki innan landamæranna frá 1967,“ segir Sveinn Rúnar. „Í því felst söguleg eftirgjöf á 78 prósentum lands Palestínu undir Ísraelsríki.“ Sveinn Rúnar segir að í þessu felist að sjálfsögðu viðurkenning á Ísraelsríki, „þótt áróðursmeistarar þess virðist trúa á aðferðir Göbbels, að fólk trúi því á endanum sem er endurtekið nógu oft“.- gb
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira