Ísraelsstjórn hafnar samstarfi við Hamas 29. apríl 2011 05:00 Fjölmargir Palestínumenn fögnuðu samkomulagi Fatah og Hamas um að stjórna sjálfsstjórnarsvæðum Palestínu sameiginlega næsta árið og boða svo til kosninga. Hrifningin var minni hjá stjórnvöldum í Ísrael. Fréttablaðið/AP
Stjórnvöld í Ísrael munu ekki ræða við palestínsk stjórnvöld á meðan Hamas-samtökin eiga aðild að stjórn Palestínu, sagði Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, í gær. Forsvarsmenn stríðandi fylkinga Palestínumanna náðu á miðvikudag sögulegu samkomulagi um að sameina á ný svæði í Palestínu og hætta innbyrðis átökum Hamas og Fatah, sem kostað hafa hundruð manna lífið á síðustu árum. „Með þessu er verið að fara yfir strikið,“ sagði Lieberman. „Þetta samkomulag þýðir í raun að hryðjuverkamenn eru komnir til valda á Vesturbakkanum.“ Ísrael, Bandaríkin og Evrópusambandið telja Hamas hryðjuverkasamtök. Þrátt fyrir að samkomulagið auki bjartsýni á að Palestínumenn geti sameinast í kröfum sínum um frjálst og sjálfstætt ríki er ekki talið líklegt að fréttir af samkomulagi Hamas og Fatah blási nýju lífi í viðræður við Ísrael um sjálfstætt ríki Palestínumanna. „Fólkið kallaði eftir því að bundinn væri endi á klofninginn. Við segjum við fólkið: Það sem þið báðuð um er nú orðið að veruleika,“ segir Azzam al-Ahmed, sem fór fyrir samninganefnd Fatah í viðræðunum við Hamas. Hamas og Fatah ætla nú að sameinast um eina ríkisstjórn sem starfa á tímabundið í eitt ár. Að þeim tíma liðnum verður boðað til forseta- og þingkosninga. Óvild milli Hamas og Fatah hefur verið mjög uppi á yfirborðinu frá árinu 2006. Í kjölfar kosningasigurs Hamas, sem eru herskárri samtök en Fatah, komst Hamas til valda á Gasa en Fata hhélt stjórn á Vesturbakkanum. Stjórnvöld í Ísrael brugðust við fréttunum með því að hafna því alfarið að Hamas tæki þátt í stjórn Palestínu, enda hafi samtökin það á stefnuskrá sinni að eyða Ísraelsríki. Í yfirlýsingu bandarískra stjórnvalda var tekið í sama streng. „Palestínsk stjórnvöld verða að velja á milli þess að semja frið við Ísrael eða semja frið við Hamas,“ sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í yfirlýsingu. „Það gengur ekki að semja frið við báða þar sem takmark Hamas er að eyða Ísraelsríki.“ Innanbúðarmenn hjá Hamas-samtökunum segja að öryggissveitir samtakanna muni áfram stýra Gasa-svæðinu. Al-Ahmed sagði hins vegar að öryggissveitir bæði Fatah og Hamas yrðu sameinaðar og endurskipulagðar með aðstoð vinveittra arabaríkja. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, mun sitja áfram samkvæmt samkomulaginu, en forsætisráðherrar beggja landsvæða munu segja af sér. Ósamkomulag milli hópa Palestínumanna hefur haft afar slæm áhrif á það friðarferli sem þó hefur verið í gangi undanfarin ár, enda hafa Palestínumenn ekki getað talað einum rómi í viðræðunum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira