Enginn ógnar Obama ennþá 23. apríl 2011 03:30 Barack Obama þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af vinsældum mótframbjóðenda sinna enn sem komið er. NordicPhotos/AFP
Þrátt fyrir þverrandi vinsældir er Barack Obama Bandaríkjaforseti enn sigurstranglegastur meðal líklegra frambjóðenda í forsetakosningum næsta árs. Helgast það fyrst og fremst af óánægju repúblikana með þá valkosti sem nú eru í boði. Í könnun sem Washington Post birti fyrir skemmstu kom fram að þrátt fyrir að innan við helmingur svarenda væri ánægður með frammistöðu Obama á forsetastóli er innan við helmingur repúblikana og óháðra sem hallast að repúblikönum sáttur við núverandi hóp frambjóðenda. Það sést einnig á því að þegar fólk í þessum hópi er beðið um að velja einn frambjóðanda sem það gæti hugsað sér að kjósa í forkosningum er aðeins einn með yfir tíu prósenta fylgi. Það er Mitt Romney, sem er með sextán prósent, en þar á eftir kemur viðskiptajöfurinn umdeildi Donald Trump með átta prósent. Romney og Mike Huckabee mældust með mest fylgi hugsanlegra frambjóðenda í samanburði við Obama, en samkvæmt könnuninni myndi Romney tapa fyrir Obama með fjórum prósentustigum og Huckabee með sex. Fyrstu forkosningarnar fara fram í febrúar en sigurvegarinn verður útnefndur á flokksþingi í ágúst 2012.- þj
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Sjá meira