Sex til níu mánuðir í viðbót 18. apríl 2011 04:00 stöðva geislavirkni Starfsmenn kjarnorkuversins í Fukushima reyna að koma í veg fyrir að geislavirknin dreifist út.
Stjórnendur kjarnorkuversins Fukushima Dai-ichi í Japan telja að það taki sex til níu mánuði að stöðva geislavirknilekann þar og að kæla niður kjarnaofnana. Vonir standa til að eftir það geti þeir tugir þúsunda manna sem þurftu að flýja nærliggjandi svæði af ótta við geislavirkni snúið aftur til heimkynna sinna. Þessi langi tími hefur ekki fallið vel í kramið hjá flóttafólkinu. „Þetta ár er tapað,“ sagði Kenji Matsueda, sem býr í flóttamannaskýli í Fukushima eftir að hafa þurft að yfirgefa heimili sitt sem er tuttugu kílómetrum frá kjarnorkuverinu. „Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera. Níu mánuðir eru langur tími og þetta gæti tekið lengri tíma. Ég held að þeir viti í raun og veru ekki hversu langur tíminn verður.“ Mikill þrýstingur hefur verið á stjórnvöld í Japan og rekstraraðila kjarnorkuversins, Tokyo Electric Power Company, að leysa úr eftirköstum versta kjarnorkuslyss Japans sem varð 11. mars síðastliðinn. Þá fór rafmagn af í kjarnorkuverinu í Fukushima og kælikerfi þess urðu óstarfhæf eftir að jarðskjálfti skók landið með tilheyrandi flóðbylgju. Til að sýna samstöðu með Japönum heimsótti Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Tókýó í gær og drakk te með keisaranum og keisaraynjunni. Um 28 þúsund manns hafa fundist látnir eða er saknað vegna flóðbylgjunnar í landinu. - fb
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Fleiri fréttir Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán