Fréttaskýring: Enn enginn augljós keppinautur Obama 15. apríl 2011 11:00 Spenna fram undan Allt stefnir í tvísýna baráttu í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, er efstur ásamt auðjöfrinum Donald Trump samkvæmt nýrri könnun CNN. NordicPhotos/AFP
Kosningabarátta repúblikana fyrir forsetakosningarnar að hefjast. Enn er enginn stakur frambjóðandi líklegri en aðrir. Meirihluti almennings ósáttur við núverandi valkosti. Obama safnar metfjárhæðum til að verja forsetastólinn. Hverjir eru líklegir til að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári? Hjólin eru farin að snúast fyrir forval Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fjölmargir hafa látið í ljósi áhuga á að spreyta sig gegn Barack Obama, sitjandi forseta, en hingað til er enginn farinn að skilja sig frá hjörðinni. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, sem tapaði fyrir John McCain í forvalinu árið 2008, hefur verið efstur í mörgum viðhorfskönnunum í vor, en í könnun CNN í vikunni mældist auðjöfurinn og sjónvarpsstjarnan Donald Trump jafn honum á toppi listans, án þess þó að sá síðarnefndi hafi enn ákveðið framboð. Fyrir utan þá tvo eru menn eins og Newt Gingrich, fyrrverandi leiðtogi fulltrúadeildarinnar, og Mike Huckabee í umræðunni, en í raun hafa aðeins fjórir tekið fyrsta skrefið í átt til framboðs. Romney og Gingrich, auk ríkisstjórans Tims Pawlenty og Ricks Santorum, fyrrverandi öldungadeildarþingmanns, hafa sett á laggirnar svokallaða könnunarnefnd, sem gerir þeim kleift að hefja fjársöfnun fyrir átökin sem fram undan eru. Búist er við að fleiri bætist við á næstunni og í því sambandi er rætt um þingkonuna umdeildu Michele Bachmann og enn einn ríkisstjórann, Haley Barbour frá Mississippi. Þá má alls ekki gleyma Söruh Palin, sem hefur lengi verið að gæla við þá hugmynd að bjóða sig fram, en hefur ekki enn tekið af öll tvímæli. Þessi hópur virðist ekki höfða sterklega til kjósenda þar sem nýleg könnun Fox News sjónvarpsstöðvarinnar leiddi í ljós að tveir þriðju landsmanna voru óánægðir með þá valkosti sem nú stæðu í fararbroddi repúblikana. Vandamál flestra er að enn sem komið er þekkir almenningur illa til þeirra. Fram undan eru annasamir mánuðir hjá þeim sem láta slag standa og hella sér af fullum krafti út í baráttuna. Eins og ætíð mun árangur frambjóðenda í fjáröflun ráða miklu um hvort þeir hljóti brautargengi þegar kemur að forvalinu sjálfu, en fyrstu forkosningarnar fara fram í febrúar og sigurvegarinn verður útnefndur á flokksþingi í ágúst 2012. Þá fyrst hefst bardaginn fyrir alvöru því að þrátt fyrir að Obama hafi verið umdeildur það sem af er kjörtímabili er hann engu að síður sitjandi forseti og stefnir að því að safna einum milljarði dala til að kosta baráttu sína fyrir endurkjöri.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira