Enn finnast bein á ströndinni 12. apríl 2011 08:00 Aðstæður á ströndinni eru afar erfiðar en óttast er að mun fleiri fórnarlömb séu enn ófundin á ströndinni.nordicphotos/afp
Lögregluyfirvöld í New York grunar að raðmorðinginn sem leitað er í borginni geti verið fyrrverandi lögregluþjónn. Bein fundust í gær en ekki er búið að staðfesta að um enn eitt fórnarlamb morðingjans sé að ræða. Eitt lík af átta, sem fundist hafa á strönd á Long Island, er talið vera að barn, ekki eldra en átján mánaða. Eins og greint hefur verið frá í fréttum fundust fjögur lík í desember. Þau reyndust öll vera af vændiskonum sem saknað hefur verið allt aftur til ársins 2007. Fjögur lík fundust á dögunum sem ekki hafa verið borin kennsl á. Konurnar sem búið er að nafngreina höfðu allar auglýst þjónustu sína á vinsælli stefnumótasíðu sem ber nafnið Craigslist. Bandarískar fréttastofur sögðu frá því í gær að aðferðir raðmorðingjans bentu til þess að hann þekkti í þaula starfsaðferðir lögreglu og að maður hefði hringt til systur eins fórnarlambsins úr síma sem hún var með þegar hún hvarf. Lögregla segir að morðinginn hafi greinilega verið virkur í nokkur ár. Hann skipuleggi morðin áður en hann leggur til atlögu, myrði konurnar á einum stað og losi sig við líkin á ströndinni, og jafnvel víðar. Alríkislögreglan, sem tekur þátt í rannsókninni, telur ekki að morðinginn skeri sig úr; hann eigi fjölskyldu og vini og útilokað sé að greina morðæðið í fari hans. - shá
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Fleiri fréttir Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Sjá meira