Portúgal þarf 80 milljarða 9. apríl 2011 09:30 Nafnarnir Jean-Claude Juncker og Jean-Claude Trichet fjármálaráðherra Lúxemborgar og bankastjóri Seðlabanka Evrópu á fundinum í Ungverjalandi. Mynd/AP
Fjármálafróðir embættismenn Evrópusambandsins munu sitja næstu vikurnar við að reikna út hve mikið fé portúgalska ríkið þarf í aðstoð frá ESB til að geta staðið við skuldbindingar sínar næstu mánuði og misseri. Olli Rehn, peningamálastjóri framkvæmdastjórnar ESB, sagðist í gær telja að Portúgalar muni þurfa 80 milljarða evra, eða rétt rúmlega 13.000 milljarða króna, en tók fram að þetta væri algjört bráðabirgðamat. Endanleg upphæð verði ekki ljós fyrr en að loknum nokkurra vikna rannsóknum. Samningur ætti þó að verða tilbúinn til undirritunar um miðjan maí, rétt í tæka tíð fyrir gjalddaga stórra lána í júní. Nú í vikunni fór Portúgal fram á aðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það kom í hlut Jose Socrates, sem gegnir embætti forsætisráðherra landsins þangað til nýtt þing hefur verið kosið, að biðja um aðstoðina, en hann sagði af sér í síðasta mánuði eftir að þjóðþing landsins hafnaði áformum hans um aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum. Portúgal er þriðja evruríkið sem fer þessa leið, en áður hafa bæði Grikkland og Írland neyðst til að leita á náðir Evrópusambandsins til að bjarga sér út úr óviðráðanlegri kreppu. Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna, sem hittust í Ungverjalandi í gær, segja að jafnframt aðstoðinni verði Portúgölum sett ströng skilyrði um aðhald í ríkisfjármálum, sem eiga að tryggja að landið geti greitt af lánum sínum næstu þrjú árin. Þau skilyrði verða enn strangari en þær aðhaldsaðgerðir, sem portúgalska þingið hafnaði, þannig að nú bíða evrópskra og portúgalskra ráðamanna erfiðar samningaviðræður. Ekki er þó víst að stjórnvöldum Grikklands, Írlands og nú Portúgals takist að standa við þau ströngu skilyrði, sem þeim hafa verið sett. Mikil reiði hefur verið meðal almennings, sem hefur átt erfitt með að sætta sig við að aðhaldsaðgerðirnar bitni á þeim sem síst skyldi. Þannig fengu Grikkir í gær áminningu frá Seðlabanka Evrópu um að standa við tímaáætlun um þær aðgerðir, sem þeir hafa skuldbundið sig til að hrinda í framkvæmd. „Við minntum grísk stjórnvöld á það að mikilvægt sé að halda sig við markmið um fjárlagahalla næstu árin,“ sagði Jean Claude Juncker, fjármálaráðherra Lúxemborgar, sem jafnframt er aðaltalsmaður evruríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Sjá meira