Innlent

Helmingur fjölskyldugarða verið leigður út

Matjurtargarður.
Matjurtargarður.
Góð viðbrögð hafa verið við því útspili borgaryfirvalda að bjóða fjölskyldum til leigu matjurtabeð þar sem skólagarðar hafa verið hingað til. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær verða Skólagarðar Reykjavíkur lagðir niður í hagræðingarskyni. Rekstur þeirra kostaði borgina 24 milljónir króna í fyrra.

Skólagarðarnir hófu göngu sína á Klambratúni sumarið 1948. Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi umhverfissviðs borgarinnar, segir aðspurður að athugasemdir hafi borist vegna þess að skólagarðarnir séu nú lagðir niður. „Eitt kvörtunarbréf hefur borist,“ segir Gunnar.

Varðandi viðbrögð í gær eftir að Fréttablaðið sagði frá því að skólagarðarnir yrði lagðir niður en fjölskyldum þess í stað gefinn kostur á að leigja beðin þá segir Gunnar þau fyrst og fremst hafa verið frá foreldrum sem vilji panta fjölskyldugarð.

„Oft er nefnt að fjölskyldan vilji vera með garð í nágrenni sínu þar sem skólagarðar voru áður og rækta karftöflur og kál. Þetta er í samræmi við aukinn áhuga almennings frá 2009 á að vera með matjurtagarð og rækta sitt eigið grænmeti. Ég býst við að það muni sem sagt festa sig aftur í sessi að fjölskyldan verði með matjurtagarð og kenni börnunum að rækta,“ segir Gunnar sem kveður enn um þrjú hundruð beð laus. Skikarnir eru alls um sex hundruð talsins.

- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×