Bæta stolna skartgripi eingöngu að litlu leyti 25. mars 2011 10:00 Innbrotsþjófarnir sem hafa látið greipar sópa á heimilum fólks á undanförnum vikum hafa sóst eftir dýru skarti en skilið hið ódýrara eftir. Mynd/úr safni
Tvær konur í Kópavogi, sem urðu nýlega fyrir barðinu á bíræfnum skartgripaþjófum, fá ekki nema fimm prósent af tryggingafjárhæð á innbúi og persónulegum munum endurgreidd frá tryggingafélaginu. Þær voru tryggðar hjá VÍS. Þjófarnir höfðu á brott með sér mikið af dýrum skartgripum úr gulli og hvítagulli með eðalsteinum. Innbrotafaraldur er nú í gangi, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Um tuttugu innbrot hafa verið framin á höfuðborgarsvæðinu. Þau eiga það sammerkt að einungis var farið inn í sérbýli, helst inn um svefnherbergisglugga eða dyr á bakhliðum húsa í útjaðri byggðar og dýrum skartgripum stolið. Konurnar tvær sem Fréttablaðið ræddi við í gær báðust undan því að koma fram undir nafni undir þessum erfiðu kringumstæðum. Þær voru sammála um að þjófarnir væru þrautþjálfaðir í sínu „fagi". Báðar kváðust þær ætla að herða öryggisgæslu heima hjá sér eftir föngum eftir þessa dapurlegu reynslu. Önnur kvennanna var með stórt skartgripaskrín í fataherbergi undir stafla af fötum. Þjófarnir tæmdu það, að nokkrum silfurskartgripum og semelíusteinum undanskildum, og settu það síðan aftur á sinn stað. Konan, sem er ekkja, átti meðal annars mikið af sérsmíðuðum skartgripum sem maðurinn hennar hafði gefið henni og þeim stálu þjófarnir, auk giftingarhringa þeirra beggja. Að auki voru dýrmætir ættargripir teknir. Konan er með átta milljóna króna innbústryggingu en hefur verið tjáð að hún fái að hámarki fimm prósent af henni eða 400 þúsund krónur. „Ég reyni bara að gleðjast yfir því að hvorki börn mín né aðrir sem ég þekki stunda óheiðarlega iðju, heldur er gott og heilbrigt fólk í kringum mig," segir hún. Hin konan og tvær dætur hennar misstu skartgripi sína, auk tveggja nýlegra tölva, sem hún hafði nýverið skannað allar sínar fjölskyldumyndir inn á. Hún segir þjófana hafa valið vendilega dýra skartgripi, en skilið hina ódýrari eftir. Hildur Arna Hjartardóttir, vörustjóri hjá VÍS, segir að F plús trygging á innbúi og persónulegum munum nái ekki yfir úr og skartgripi nema að hluta. Um sé að ræða tiltekið ákvæði í skilmálum þar sem segi að úr og skartgripir fáist bætt að hámarki með fimm prósentum af vátryggingafjárhæðinni. Fólki sé bent á að taka sérstakar tryggingar fyrir skartgripum. jss@frettabladid.is
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira