Ekki á að þrengja að fjölmiðlum 24. mars 2011 07:00 Skúli Helgason
Menntamálanefnd Alþingis hefur lokið fyrstu yfirferð frumvarps að heildarlögum um fjölmiðla. Önnur umræða fer fram á næstunni. Að sögn Skúla Helgasonar, formanns menntamálanefndar, hefur fjölmiðlafrumvarpið tekið allnokkrum breytingum í meðförum nefndarinnar, en ákvæði í því hafa sætt harðri gagnrýni af hálfu fagfélaga blaða- og fréttamanna. „Við höfum reynt að koma til móts við sjónarmið um að mikilvægt sé að skerða ekki tjáningarfrelsi miðlanna eða þrengja að þeim í sínum störfum,“ segir Skúli og kveður lagfæringar hafa verið gerðar á nokkuð mörgum stöðum í frumvarpinu. „Við höfum til dæmis dregið úr viðurlögum við ákveðnar greinar, eins og greininni um lýðræðislegar grundvallarreglur. Hún er nú meira í ætt við stefnulýsingu en að vera tengd tilteknum viðurlögum.“ Sömuleiðis segir Skúli nefndina hafa sett inn að ákvæði um ritstjórnarlegt sjálfstæði miðla, sem hann telji eitt mikilvægasta ákvæði laganna, þurfi að vinna í samstarfi við fagfélög blaða- og fréttamanna, en áður var kveðið á um að þau skyldu unnin með starfsmannafélögum. Þá segir Skúli mikilvægt að sett hafi verið í lögin nýtt bráðabirgðaákvæði um endurskoðun þeirra innan þriggja ára frá gildistöku. „Það tryggir að menn eru viðbúnir að bregðast við ef upp koma einhverjar aðstæður sem við sjáum ekki fyrir í dag.“ - óká
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira