Skólagarðar aflagðir en leigðir fjölskyldum 24. mars 2011 08:00 Reykjavíkurborg er að spara og því verður starfsemi Skólagarðanna hætt. Komið verður til móts við eftirspurn með því að leigja skika í görðunum til almennings.Fréttablaðið/Valli
Engir skólagarðar verða í boði fyrir reykvísk börn næsta sumar. Garðarnir verða hins vegar boðnir til leigu undir matjurtagarða fyrir fjölskyldur. „Ástæðan er sparnaður og hagræðing," segir Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi umhverfissviðs borgarinnar. Foreldrar hafa greitt þrjú þúsund krónur fyrir hvern skika sem börn hafa fengið í skólagörðunum. Innifalið í gjaldinu var bæði útsæði og starfsfólk sem aðstoðaði börnin. Að sögn Gunnars var kostnaður borgarinnar af skólagörðunum í fyrra 24 milljónir króna. Til samanburðar eiga fjölskyldur að greiða 4.200 krónur fyrir sams konar skika sem er tuttugu fermetrar. Það eina sem fylgir er aðgangur að útikrana með köldu vatni. „Gert er ráð fyrir að Fjölskyldugarðar komi út á núllinu," segir Gunnar. Að sögn Gunnars dalaði aðsókn í skólagarðana fram til ársins 2007. „Eftir hrunið jókst áhuginn aftur og það hefur verið eftirspurn eftir matjurtagörðum fyrir almenning," segir hann. Hægt verður að leigja garða í Breiðholti, Árbæ, Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal og Grafarvogi. Aðspurður segir Gunnar að úthlutunarreglurnar séu einfaldar. „Fólk er skráð þar til garðarnir eru orðnir fullir," upplýsir hann. Um sex hundruð skikar eru í boði. Þá stendur Reykvíkingum áfram til boða að leigja 100 fermetra garðland í Skammadal ofan við Mosfellsbæ fyrir 4.600 krónur. Hagræðingin á ekki eingöngu að felast í hækkaðri garðleigu og minni tilkostnaði vegna sumarstarfsfólks og útsæðis. Framkvæmda- og eignasvið borgarinnar hefur nú tekið yfir húsakostinn við skólagarðana og hyggst nýta hann til að afla tekna. Þannig hefur verið sótt um leyfi til að fá að leigja þrjú húsanna til dagforeldra. Þau hús eru við Logafold í Grafarvogi, við Bjarmaland í Fossvogi og við Holtaveg í Laugardal. „Nú þegar eru dagforeldrar komnir með á leigu nokkur hús við gæsluvelli borgarinnar og hefur það komið vel út fyrir alla," segir eignasviðið í leyfisumsókn sinni. Við gæsluvellina leigi tveir dagforeldrar hvert hús saman og reiknað sé með því sama hvað skólagarðahúsin varðar.gar@frettabladid.is
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Sjá meira