Samþykkt öryggisráðs misnotuð 23. mars 2011 07:00 Stefán Pálsson „
Friði verður ekki komið á eða viðhaldið með loftárásum," segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. Samtökin vara íslensk stjórnvöld við að styðja loftárásir vestrænna ríkja í Líbíu. Í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í gær segir að ríkin sem nú standa fyrir loftárásum í landinu hafi misnotað samþykki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem heimiluðu flugbann yfir Líbíu. „Við teljum það mjög varhugavert ef íslensk stjórnvöld ætla að stilla sér upp með þeim herskáu þjóðum sem túlka mjög loðna og almennt orðaða ályktun öryggisráðsins um flugbann sem auðan tékka um að gera megi stórfelldar loftárásir á landið," segir Stefán. Hann segir að menn ættu að vera búnir að læra að lofthernaður bitnar sérstaklega harkalega á almennum borgurum. Enginn ætti að trúa lengur sögum um að sprengjurnar séu svo nákvæmar að þær hæfi bara hernaðarleg skotmörk. Spurður hvort vestrænar þjóðir eigi ekki að bregðast við stríðsástandi í landinu með einhverjum hætti segir Stefán að loftárásirnar geri illt verra. Friðarsinnar hafi varað við árásum á Afganistan árið 2001 og Írak 2003, og vari nú við árásum á Líbíu. Þeir hafi haft rétt fyrir sér um Afganistan og Írak, svo vonandi verði tekið mark á þeim nú. - bj
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira