Ummæli í frétt RÚV sett fram í góðri trú 23. mars 2011 06:00 Fögnuðu í dómsal Á annan tug fréttamanna af Ríkisútvarpinu fagnaði með félögum sínum þegar dómari við Héraðsdóm Reykjaness sýknaði fréttamenn og útvarpsstjóra í meiðyrðamáli í gær.Fréttablaðið/GVA
Mikil fagnaðarlæti brutust út hjá starfsmönnum Ríkisútvarpsins þegar tveir fréttamenn og útvarpsstjóri voru sýknaðir af meiðyrðakröfu í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Fréttamenn RÚV fjölmenntu í héraðsdóm til að hlýða á dómsuppsögu í meiðyrðamáli sem Pálmi Haraldsson athafnamaður, kenndur við Fons, höfðaði aðallega á hendur Svavari Halldórssyni fréttamanni. „Ég fagna þessu, þetta er sigur réttlætisins. Fréttin okkar var rétt og byggði á traustum heimildarmönnum þó við höfum ekki getað gefið upp fyrir dómi hverjir þeir eru,“ sagði Svavar eftir að dómurinn var kveðinn upp. Í niðurstöðum dómsins segir að Svavari kunni að hafa skjátlast að einhverju leyti í mati á heimildum, eins og Pálmi hafi „leitt nokkrar líkur að“. Ekki hafi þó verið sýnt fram á að fullyrðingarnar sem birtust í frétt Svavars hafi verið „settar fram í vondri trú“. Fréttin birtist í fréttatíma Sjónvarpsins 25. mars í fyrra. Í dómnum segir að í ljósi aðstæðna sem skapast hafi í kjölfar bankahrunsins verði Pálmi að þola nærgöngula umræðu um verk sín og persónu. Lánveitingar og fjármagnsflutningar í aðdraganda hrunsins séu mikilvægar fréttir sem eigi brýnt erindi við almenning. Pálmi stefndi til vara Páli Magnússyni útvarpsstjóra og Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur, sem var fréttaþulur kvöldið sem frétt Svavars var flutt, og las inngang fréttarinnar. Dómurinn sýknaði Pál og Maríu Sigrúnu af kröfum Pálma. Í stuttri yfirlýsingu sem Pálmi sendi fjölmiðlum eftir að dómur féll segir að niðurstaðan hafi komið á óvart og hún valdi honum vonbrigðum. Dómnum verði „að sjálfsögðu“ áfrýjað. Pálmi svaraði ekki ósk Fréttablaðsins um viðtal. Í frétt Svavars var fjallað um 2.500 milljóna króna lánveitingu frá Glitni til Pálma Haraldssonar. Því var haldið fram í inngangi að peningarnir væru „gufaðir upp“ og í lok fréttarinnar að peningarnir fyndust hvergi. Þá var því haldið fram að lánveitingin hefði átt sér stað „rétt fyrir hrun“. Í gögnum sem Pálmi lagði fyrir dóminn kom fram að lánið hefði verið veitt í desember 2007, og því vart hægt að halda því fram að það hafi verið veitt „rétt fyrir hrun“. Þá hélt lögmaður Pálma því fram að tæpar 2.000 milljónir hefðu verið notaðar til að greiða upp skuldabréf hjá Landsbankanum. Afgangurinn hefði ýmist farið inn á reikning Pálma eða farið til kaupa í Sjóði 9 hjá Glitni. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira