Málum sérstaks saksóknara fjölgar enn 19. mars 2011 03:30 sérstakur saksóknari Málin halda áfram að hrannast upp hjá embætti sérstaks saksóknara. Fréttablaðið/stefán
Níu mál komu inn á borð sérstaks saksóknara í síðustu viku. Heildarfjöldi mála er þar með orðinn 119 en þar af teljast 89 virk. Talan mun að öllum líkindum halda áfram að hækka á næstu misserum en tugir mála eru til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi embættis ríkissaksóknara og Ákærendafélagsins í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins í gær. Rætt var um stöðu embættis sérstaks saksóknara og framtíð efnahagsbrotarannsókna á Íslandi. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, og Helgi Magnús Gunnarsson sem er varasaksóknari Alþingis í ótímabundnu leyfi frá starfi saksóknara efnahagsbrota, tóku til máls á fundinum. Í erindi sínu fór Ólafur yfir gang mála hjá embættinu frá því það var sett á laggirnar í lok árs 2008. Í upphafi störfuðu þar fimm einstaklingar en þeim hefur fjölgað í 72. Í málunum 119 sem embættið hefur rannsakað koma fyrir 100 ólíkir sakborningar en nokkur fjöldi þeirra kemur við sögu í fleira en einu máli. Ólafur sagði flest málin varða verulega fjárhagslega hagsmuni og yfirleitt hafi margir komið að þeim gjörningum sem til skoðunar séu. Þá telji innlendir sem erlendir sérfræðingar málin stór og flókin á alla mælikvarða. „Til marks um það má nefna nýlega aðgerð sem Serious Fraud Office (SFO) í Bretlandi stóð fyrir í samvinnu við okkur. Þar tóku þátt 135 löreglumenn og starfsmenn SFO. Þetta telst langstærsta aðgerð sem SFO hefur staðið fyrir,“ sagði Ólafur. Sérstakur saksóknari hefur hingað til gefið út tvær ákærur en að sögn Ólafs bíða stóru málin enn. Áætlanir gera ráð fyrir að flestum málum verði lokið eða þau komin vel á veg árið 2014. Komið hefur fram að sameina á embætti sérstaks saksóknara og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í haust. Ólafur og Helgi ræddu fyrirhugaða sameiningu einnig á fundinum sem þeir telja skynsamlega. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira