Í ársfrí eftir einelti af hálfu bæjarstjóra: Ég gat ekki meira 14. mars 2011 09:00 Ólafur Melsteð segir Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra hafa viljað bola sér í burtu eftir að hún tók við starfinu af Jónmundi Guðmarssyni. „
Ég gat ekki meira, var farinn að vakna fyrir allar aldir með kvíða, lystarleysi og óþægindi. Þetta er versta lífsreynsla sem ég hef lent í,“ segir Ólafur Melsteð landslagsarkitekt og fyrrverandi framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Seltjarnarness. Hann hefur samkvæmt læknisráði verið í veikindaleyfi í rúmt ár vegna eineltis bæjarstjórans Ásgerðar Halldórsdóttur. Hann krefst bóta og að bæjarstjórinn víki. Ólafur segir einelti Ásgerðar hafa byrjað eftir að hún tók við stöðu bæjarstjóra um mitt ár 2009 af Jónmundi Guðmarssyni, sem réð hann í starfið í október 2008. „Hún ætlaði að losna við mig frá upphafi, sumir segja að það hafi verið af því að Jónmundur réð mig,“ segir Ólafur, sem fór í veikindaleyfi í janúar í fyrra. Í september í fyrra var honum tilkynnt að staða hans hefði verið lögð niður og honum sagt upp. Allir framkvæmdastjórar sem sagt var upp hjá bænum á sama tíma voru endurráðnir en ekki hann. Ólafur reyndi í nokkur skipti að vekja athygli bæjarstjórnar Seltjarnarness á eineltinu og fá hana í tvígang í fyrravor til að greiða hluta af kostnaðinum við að fá óháða matsmenn til að skoða ásakanir um eineltið. Þar kom hann að lokuðum dyrum. „Lögmaður bæjarins svaraði því oft að ekki væri um neitt einelti að ræða,“ segir Ólafur. „Það var mat lögmanna okkar á þeim tíma að þetta færi svona eins og það hefur spilast. Við kynntum okkur það líka að ekki væri verið að brjóta á rétti neins. Við dómsniðurstöðu dæmir dómari málskostnað og fleira,“ segir Guðmundur Magnússon, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness. Hann bætir við að málið sé litið alvarlegum augum. Fundað verður um það í vikunni. „Við fengum niðurstöðuna úr matinu á miðvikudag. Þá voru aðrir fundir. Menn vildu geta kynnt sér þetta betur. Lögmenn vildu fá skýrsluna til að kynna sér innihald hennar betur. Við munum fara yfir þetta mál í vikunni,“ segir Guðmundur.jonab@frettabladid.is
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira