Samningi um dvöl á leikskólum sagt upp 8. mars 2011 07:00 Leikskólabörn Reykjavíkurborg telur fjárhagslega á sig hallað varðandi vistaskipti leikskólabarna milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.Fréttablaðið/Stefán
Leikskólasvið Reykjavíkurborgar hefur sagt upp samningi um leikskóladvöl barna sem flytjast milli leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. „Undanfarin ár hafa mun fleiri börn með lögheimili í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur dvalið í reykvískum leikskólum en reykvísk börn í leikskólum þeirra,“ segir Kristín Egilsdóttir, fjármálastjóri leikskólasviðs borgarinnar, í bréfi til nágrannasveitarfélaganna. Samkvæmt upplýsingum frá leikskólasviði eru að jafnaði 33 börn úr öðrum sveitarfélögum í leikskóla í Reykjavík en fimmtán reykvísk börn í leikskólum annarra sveitarfélaga. Kristín segir upphæðir í gjaldskrá sem notuð sé til viðmiðunar vera langt undir raunkostnaði og þar með sé Reykjavíkurborg að niðurgreiða leikskóladvöl þeirra barna sem séu í reykvískum leikskólum en eigi lögheimili í öðru sveitarfélagi. „Það er óviðunandi, ekki síst í árferði sem nú, þegar grípa þarf til sársaukafullra aðgerða til að hagræða í rekstri,“ skrifar Kristín í bréfi sínu. Uppsögnin á samkomulaginu tekur gildi 1. júní. Kristín segir leikskólasvið Reykjavíkurborgar hafa reynt allt frá árinu 2008 að fá viðmiðunargjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) breytt þannig að hún endurspegli raunkostnað við leikskóladvölina. „Ekkert hefur þokast í samningsátt,“ segir Kristín, sem upplýsir að við gerð fjárhagsáætlunar borgarinnar hafi verið ákveðið að fara ekki eftir gjaldskránni heldur innheimta meðalraunkostnað fyrir börn í sama árgangi í leikskólum borgarinnar. Sparnaður vegna þessara breytinga er áætlaður á sjöundu milljón króna á ári. Fjármálastjóri leikskólasviðsins stingur upp á tveimur útfærslum við skiptingu kostnaðarins. Annars vegar að borgin sendi mánaðarlega reikning fyrir dvölina til lögheimilissveitarfélagsins sem síðan rukki foreldrana fyrir þeirra hlutdeild. Hins vegar að foreldrununum sé sendur reikningur fyrir því sem svarar til fullrar gjaldskrár lögheimilissveitarfélagsins og síðan fái sveitarfélagið reikning fyrir því eftir stendur. Fulltrúar allra sveitarfélaganna og SÍS funduðu 1. mars til að fara yfir breytingarnar. Þar var mál manna að fara eftir fyrri leiðinni hér að ofan á síðari helmingi þessa árs, það er að senda sveitarfélögunum reikningana en ekki foreldrunum beint. SÍS hyggst síðan leggja fram tillögur um framtíðarskipanina 1. september. „Á meðan það er uppi ágreiningur um hvaða forsendur eigi að nota til að reikna út sanngjarnt viðmiðunargjald þá klárum við ekki málið,“ segir Tryggvi Þórhallsson hjá lögfræðisviði SÍS. gar@frettabladid.is
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira