Ótrúlegar skuldir Jacksons 18. febrúar 2011 23:30 Michael Jackson rakar inn seðlum eftir andlát sitt og kannski er það eins gott því hann skuldaði um 47 milljarða.nordicphotos/getty
Í júní næstkomandi verða liðin tvö ár frá því að Michael Jackson andaðist langt fyrir aldur fram. Læknir poppgoðsins er fyrir dómstólum vegna gruns um vanrækslu og hálfgerð „skilanefnd“ er á fullu við að endurskipuleggja fjárhag fjölskyldu hans. Michael Jackson andaðist í júní 2009, þremur vikum fyrir áætlaða tónleikaferð sína, This Is it. Fjölmiðlar héldu því fram á þeim tíma að Jackson hefði neyðst til að fara í tónleikaferðina til að grynnka á skuldum sem voru, samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla, gríðarlegar eftir gegndarlausa eyðslu gegnum tíðina. Fjölmiðlar þar vestra virðast hafa haft nokkuð til síns máls því vefsíðan tmz.com hefur komist yfir skjöl frá fjárhaldsmönnum Jackson-búsins sem sýna fram á að Jackson var í raun og veru stórskuldugur maður þrátt fyrir að vera stærsta poppstjarna sögunnar. Samkvæmt áðurnefndum skjölum skuldaði Jackson yfir 400 milljónir dala, eða um 47 milljarða íslenskra króna, fyrir margvíslega hluti. Dánarbúið skuldaði auk þess AEG fjörutíu milljónir dala vegna tónleikaferðinnar This Is it, sem samsvarar á fimmta milljarð íslenskra króna. Jackson hefur hins vegar breyst í hálfgerða gullgæs eftir að hann dó því dánarbúið hefur þénað 300 milljónir dala, eða 35 milljarða íslenskra króna. Af þeim hefur 159 milljónum dala verið eytt í greiðslu skulda og skatta auk þess sem Katherine Jackson, móðir popparans, hefur fengið sína sneið af kökunni, sem og börn Jacksons. Þá greiddi dánarbú Jacksons sjálft fyrir jarðarförina og minningarathöfnina. Samkvæmt hálfgerðri „skilanefnd“ dánarbús Jackson á það enn yfir höfði sér málsóknir vegna skulda úti um allan heim. Yfir 65 kröfur hafa verið gerðar í dánarbúið. „Við teljum okkur hins vegar hafa endurreist ímynd Jacksons og traust hans gagnvart lánardrottnum,“ hefur tmz.com eftir einum skilanefndarmanna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Fleiri fréttir Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Sjá meira