Innlent

Völvan sannspá um árið 2011

Hafsteinn Hauksson skrifar
Völva Vikunnar hitti naglann á höfuðið þegar hún spáði jarðhræringum og jökulhlaupi á Suðurlandi, en hljóp hins vegar á sig þegar hún spáði ríkisstjórninni falli í ár. Hafsteinn Hauksson fer yfir það sem rættist og rangt var í völvuspá ársins.

Völva Vikunnar var sannspá um ýmislegt sem gerðist á árinu. Um þetta leyti 2010 sagði völvan að hún sæi ekki fyrir endann á Icesave málinu þótt endalokin ættu að verða á því fljótlega. Það reyndist svo rétt því á fyrstu dögum ársins vísaði forsetinn samningunum til þjóðarinnar sem síðan hafnaði þeim, og enn sér ekki fyrir endann á málinu.

Völvan sagðist ekki viss um að hún sæi eldtungur á árinu, en útilokaði ekki að spryngi upp úr við Vatnajökul. Þar tók völvan grunnt í árinni, enda gaus svo um munaði í Grímsvötnum. Hún spáði hins vegar rétt fyrir um jökulhlaup á Suðurlandi, en eitt slíkt hrifsaði brúnna yfir Múlakvísl með sér.

Alþjóðlegir fjárfestar hefðu svo betur hlustað á íslensku völvuna, því hún sagði orðrétt að evran yrði í tómu tjóni og ástandið í Evrópusambandinu myndi ekkert lagast. Beint í mark.

Þá sagði hún Amy Winehouse munu lenda í vandræðum sem tengjast neyslu hennar, en Amy Winehouse lést á árinu vegna ofneyslu vímuefna.

Það var helst í pólitíkinni sem völvan hljóp á sig, en hún spáði bæði dauða sitjandi ríkisstjórnar, og ríkisstjórnarinnar sem tæki við. Árinu ætlar þó að ljúka með sömu ríkisstjórn og það hófst.

Þá spáði Völvan því að fólk risi upp og gerði byltingu, en það hefur þvert á móti verið færra í mótmælendahópum í ár en verið hefur.

Guðmundi Steingrímssyni var svo spáð formannsstólnum í Framsóknarflokknum, en það var heldur betur ekki, því Guðmundur sagði sig úr Framsókn og ætlar að stofna nýjan flokk.

Völvan spáði raunar fyrir um hið nýja framboð, en taldi líklegra að Lilja Mósesdóttir myndi leiða það. Það er þó ekki loku fyrir það skotið að hún og Guðmundur sameini hreinlega krafta sína á síðustu dögum ársins og uppfylli Völvuspánna - þótt það verði að teljast ólíklegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×