Súdan: Nýtt ríki verður stofnað í júlí 10. febrúar 2011 20:00
Súdan verður formlega skipt í tvö ríki, Norður- og Suður-Súdan, 9. júlí næstkomandi. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa Suður-Súdans, um 98,8 prósent, greiddi aðskilnaðinum atkvæði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mikið verk bíður nú stjórnvalda í ríkjunum tveimur. Samþykkja þarf ný landamæri, hvernig skuldir og eignir skiptast milli landanna og hvernig olíulindir á landamærunum eigi að skiptast, að því er fram kemur á vef BBC. Stjórnvöld í Súdan hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir misskiptingu auðs frá olíulindum landsins, sem hefur aðallega farið í uppbyggingu í norðurhluta landsins. Súdan fékk sjálfstæði frá Bretlandi árið 1956. Borgarastyrjöld ríkti í landinu til ársins 1972, og braust aftur út tíu árum síðar. Talið er að yfir tvær milljónir manna hafi fallið í styrjöldinni. Friðarsamkomulag var undirritað árið 2005, og hluti af því samkomulagi var sátt um að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla í suðurhluta landsins um hvort skipta ætti landinu í tvennt. Stjórnvöld í landinu hafa heitið því að koma ekki í veg fyrir sjálfstæði Suður-Súdans. Mikill munur er á landslagi og lífsháttum fólks í norður- og suðurhluta þessa stærsta ríkis Afríku. Í norðurhlutanum, sem er ríkari, er meirihluti íbúanna múslimar en sunnar í landinu eru kristnir og fólk sem er andatrúar í meirihluta. Í norðurhluta landsins er þurrt landslag og eyðimörk, en frumskógar og mýrar í suðurhlutanum. Um 44 milljónir manns búa í Súdan. - bj
Mest lesið Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Innlent Fleiri fréttir Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Sjá meira