Keisari Japans áhyggjufullur yfir ástandinu í Fukushima Breki Logason skrifar 16. mars 2011 18:45
Japanskeisari lýsir yfir miklum áhyggjum með ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima en staðfest er að hátt í 4500 séu látnir og meira en átta þúsund saknað. Íslendingar búsettir í Japan hafa yfirgefið landið. Vonin um að finna fólk á lífi verður sífellt veikari eftir því sem tíminn líður. Tveir fundust þó á lífi í rústum í Sendai höfuðborg Miyagi héraðs sem fór hvað verst út úr flóðbylgjunni í gær. Margir eiga erfitt eins og þetta fólk sem horfði á björgunarmenn bera út lík náins ættingja í dag. Heilu þorpin hafa horfið og er spáð tveggja gráðu frosti á svæðinu í nótt. En það er ekki bara eftirsjáin á eftir vinum og ættingjum sem hvílir á fólki því erfitt hefur verið að að eiga við ástandið í kjarnorkuveri í bænum Fukushima. Menn hafa keppst við að kæla þrjá kjarnaodda en kælikerfi versins brást í skjálftanum. Eldur kom upp í verinu í nótt og þurftu starfsmenn sem unnu við kælingu frá að hverfa um tíma. Geislun mælist hinsvegar undir hættumörkum en margir óttast hið versta. Langar raðir mynduðust þar sem fólk lét kanna hvort það hefði orðið fyrir geislun. Urður Gunnarsdóttir upplýsingafulltrúi Utanríkisráðuneytisins fór út til Tókýó í gær til þess að aðstoða sendiráð okkar þar í landi. Vel hefur gengið að ná í þá Íslendinga sem dvelja í landinu, en einhverjir hafa þegar farið úr landi. Urður hefur setið fundi með japönskum stjórnvöldum og þar hafa menn mestar áhyggjur af ástandinu í kjarnorkuverunum. Akihito Japanskeisari hefur ávarpað þjóð sína á þessum erfiðum tímum en sjónvarpsávörp keisara eru afar fátíð. Þar bað hann fólk um að gefa ekki upp von, en lýsti jafnframt yfir miklum áhyggjum af ástandinu í kjarnorkuverinu.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Sjá meira