Innlent

230 börnum bjargað frá níðingum í aðgerð Europol

Lögregluyfirvöld í þrettán löndum með fulltingi Europol, hafa handtekið 184 grunaða barnaníðinga og bjargað um 230 börnum, í einni stærstu lögregluaðgerð af þessu tagi í heiminum.

Europol greindi frá málinu í dag. Björgunaraðgerðin „Operation rescue" hefur staðið yfir í hálft annað ár og hefur rannsóknin náð til þrettán landa, þar á meðal Íslands. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag hefur verið gefin út ákæra á hendur íslenskum manni um þrítugt eftir að myndskeið fundust á tölvu hans þar sem börn voru beitt kynferðislegu ofbeldi.

Hér að ofan má sjá myndband þar sem breska lögreglan handtekur einn barnaníðinganna á heimili hans.

Önnur lönd þar sem menn hafa verið handteknir vegna tengsla við barnaklámhring eru Ástralía, Belgía, Kanada, Grikkland, Ítalía, Holland, Nýja Sjáland, Pólland, Rúmenía, Spánn, Bretland og Bandaríkin.

Hittust á Boylover.net

Mennirnir sem tengjast þessum alþjóðlega barnaklámhring höfðu samskipti í gegn um vefsíðuna Boylover.net þar sem ýtt var undir kynferðisleg samskipti fullorðinna manna og drengja. Vefsíðan var starfrækt frá Hollandi og þegar mest var voru þar sjötíu þúsund meðlimir skráðir. Vefsíðunni hefur nú verið lokað.

Rannsóknin hefur beint sjónum lögreglu að tæplega 700 manns sem liggja undir grun um kynferðislega misnotkun á börnum víða um heim og bíður mörgum þeirra ákæra.

Aðgerðinni er ekki lokið og standa vonir lögreglu til að enn fleiri börnum verði bjargað á næstu vikum.

Rob Wainwright, yfirmaður hjá Europol, segist stoltur af framúrskarandi starfi sérfræðinga Europol sem hafa aðstoðað yfirvöld víða um heim til að ná þessum góða árangri. Hann segir það sérlega ánægjulegt að þessum mikla fjölda barna hafi verið bjargað.


Tengdar fréttir

Björgunaraðgerð Europol - Íslendingur í barnaklámhring

Íslenskur karlmaður um þrítugt kemur við sögu í alþjóðlegri lögreglurannsókn sem Europol greindi frá í dag. Rannsóknin, sem gengur undir nafninu "Operation Rescue“ og á íslensku má kalla Björgunaraðgerð, teygir sig til fjölmargra landa, sneri að samskiptum aðila á spjallrás á Netinu. Þar voru til umfjöllunar myndir sem á mátti sjá börn misnotuð kynferðislega. Um 230 börnum var bjargað í aðgerðinni. Gefin hefur verið út ákæra á hendur manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×