Smá rígur er bráðnauðsynlegur 19. nóvember 2011 09:00
Yfir fimm þúsund eru í Liverpool-klúbbnum á Íslandi og er Bragi Brynjarsson, stjórnarmaður klúbbsins og sölumaður hjá Bönunum ehf., með þeim dyggustu. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari fylgdi Braga eftir í dagsins önn og Kjartan Guðmundsson ræddi við hann. Þetta tekur sinn tíma, en ég sé ekki eftir einum einasta klukkutíma sem fer í þetta stúss. Liverpool er nú einu sinni mín helsta ástríða," segir Bragi Brynjarsson, sölumaður hjá innflutningsfyrirtækinu Bönunum ehf. og einarður stuðningsmaður enska knattspyrnuliðsins Liverpool. Sem meðlimur í stjórn Liverpool-klúbbsins á Íslandi, þar sem hann gegnir einnig stöðu viðburðastjóra, lætur Bragi sér ekki nægja að horfa á leikina heldur mætir fyrstur allra á veitingastaðinn Úrillu górilluna, nýjan heimavöll Liverpool-klúbbsins, og gerir allt klárt á leikdögum. "Við skreytum alltaf staðinn fyrir leiki til að skapa stemningu, en þó er lagt mismikið í undirbúning eftir mikilvægi viðureignanna. Auk þess sé ég meðal annars um að skipuleggja árshátíðir klúbbsins, sem notið hafa mikilla vinsælda," segir Bragi, en á téðum árshátíðum hefur í mörg ár verið vaninn að flytja inn sérstaka gesti, oftast nær úr röðum fyrrverandi leikmanna Liverpool, til að miðla af reynslu sinni og skemmta gestum. "Markaskorarinn Ian Rush er líklega mesta goðsögnin sem við höfum fengið í heimsókn. Alan Kennedy kom síðast og hann er frábær ræðumaður, en það var líka mjög gaman og eftirminnilegt að djamma heila helgi með partípésanum Neil Ruddock," segir Bragi. Liverpool-klúbburinn fagnar átján ára afmæli sínu í mars næstkomandi. "Stuðningsmannaklúbbur erkifjendanna í Manchester United á Íslandi fagnaði tuttugu ára afmæli sínu á dögunum og fékk tvo fyrrverandi leikmenn, þá Paddy Crerand og Alex Stepney, til landsins af því tilefni. Þeim Manchester-mönnum þótti það mikið afrek, en við gerum þetta á hverju ári," segir Bragi. Hann bætir við að smá rígur milli stuðningsfólks sé bráðnauðsynlegur. "Það væri ekkert gaman ef allir héldu með sama liðinu."
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Sjá meira