Telur sig hafa fundið verk eftir Michelangelo Helga Mjöll Stefánsdóttir. skrifar 23. febrúar 2011 21:30 Pietá eða Móðursorg eftir Michelangelo sem varðveitt er í St. Peter's Basilica í Róm.
Bandaríski rithöfundurinn Roy Doliner telur sig hafa fundið listaverk eftir endurreisnarmálarann Michelangelo. Verkið sem er lítil höggmynd fannst við ítalska forngripabúð í gömlum og skítugum pappakassa. Doliner segist hafa orðið orðlaus af hrifningu þegar hann sá styttuna og strax verið fullviss um að þetta væri listaverk eftir meistarann, en hann hefur nú skrifað bók um þennan merka fund sem von er á næstu misserum. Doliner, sem upplýsti fyrst um fundinn í desember á síðasta ári, segist ekki vilja gefa upp hvar verkið sé niðurkomið en hefur leyft fjölmiðlum að bera það augum. Það var listaverkasafnari sem setti sig í samband við Doliner eftir að hann fann fyrrnefnt verk og sá á því undarleg tákn, sambærileg og Michelangelo er þekktur fyrir. En Doliner hefur meðal annars sérhæft sig í þeim dularfullum táknum sem finna má í verkum eftir Michelangelo og skrifað bók um þau efni.Verkið frummynd af þekktri höggmynd Doliner telur að höggmyndin, sem sýnir Maríu mey halda á dauðum líkama Jesús í fangi sér, sé hið upprunalega listaverk sem Michelangelo er hvað frægastur fyrir og kallast Móðurást eða Pieta og er varðveitt í St. Peter's Basilica í Róm. Listfræðingar á Ítalíu eru ekki sammála Doliner og halda því fram að höggmyndin sé fummynd af verkinu Madonna della Febbre eftir myndhöggvarann Andrea Bregno. Hann var einnig þekktur listamaður á endurreisnartímabilinu líkt og Michelangelo. „Ég vissi um leið og ég sá verkið að það væri verk Michelangelos. Hann hefur gert þessa litlu höggmynd og notað sem fyrirmynd af þeirri stærri sem við þekkjum öll í dag," sagði Doliner. Búið er að gera rannsókn á verkinu og er talið að það hafi verið gert á milli 1473 – 1496 og geta því bæði Bregno og Michelangelo átt verkið. „Ef þú sérð verkið með eigin augum ertu viss um að það er enginn annar en Michelangelo sem gerði þetta stórkostlega verk," sagði Doliner við AFP fréttastofuna.
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Fleiri fréttir Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Sjá meira