Nauðgarar sjaldnast ópersónuleg skrímsli 29. júlí 2011 21:00 NEI-hreyfingin gegn kynbundnu ofbeldi hefur verið áberandi í sumar. Finnborg Salome og Thomas starfa í hreyfingunni en þau hafa áhyggjur af því hve oft þolendur kynferðisbrota eru gerðir ábyrgir fyrir brotunum í opinberri umræðu. Mynd/Stefán Karlsson „
Okkar forgangsatriði er að berjast gegn þeirri hugmynd að fórnarlömb nauðgana geti á einhvern hátt sjálfum sér um kennt. Ábyrgð á nauðgunum er alfarið hjá gerandanum en því miður virðist fókusinn í almennri umræðu oft verða á hegðun fórnarlambsins. segir Finnborg Salome Steinþórsdóttir, sem er 25 ára gömul og stundar mastersnám í kynjafræði við Háskóla Íslands. Hún er talsmaður NEI-hreyfingarinnar. „Nú fyrir verslunarmannahelgina hafa skilaboð okkar verið að á útihátíð, rétt eins og annars staðar, hefurðu rétt á því að verða ekki fyrir ofbeldi.“ NEI-hreyfingin sem berst gegn kynbundnu ofbeldi hefur verið áberandi síðustu vikur. Hreyfingin hefur í sumar unnið að átaki undir yfirskriftinni: Ef þú fékkst ekki samþykki - þá ertu nauðgari, og heimsótti meðal annars Bestu útihátíðina til að vekja hátíðargesti til umhugsunar um kynbundið ofbeldi. Finnborg Salome og Thomas Brorsen Smidt taka þátt í starfi hreyfingarinnar sem er allt unnið í sjálfboðavinnu og fjármagnað með styrkjum. Rætt er við þau í Föstudagsviðtali Fréttablaðsins.Vekjum fólk vonandi til umhugsunar Spurður hvers vegna ekki megi hafa orð á ráðum til kvenna um hvernig minnka megi líkurnar á nauðgun svarar Thomas: „Í fyrsta lagi má segja að að baki þessu sjónarmiði sé sú hugsun að nauðgarar séu á einhvern hátt skrímsli. Þeir bara nauðgi án þess að nokkuð sé hægt að gera í því og menning og andrúmsloft skipti engu máli. Málið er það að nauðgarar eru sjaldnast einhver ópersónuleg skrímsli.“ Þá segir Finnborg í viðtalinu að að svo virðist sem lögregla og réttarkerfið beini áherslunni því miður of oft að þolendunum. Þá sé einkennilegt að skipuleggjendum útihátíða finnist bara í lagi að það eigi sér stað fjöldi nauðgana á sömu hátíðunum ár eftir ár og komi svo í fjölmiðla og segi að allt hafi gengið vel. „Við áttum okkur samt á því að við komum boðskapnum ekki bara fyrir í hausnum á fólki. Við getum hins vegar vonandi vakið fólk til umhugsunar og fengið það til að hugsa öðruvísi um kynferðis-ofbeldi. Takist okkur það höfum við náð árangri,“ segir Finnborg. Viðtalið er hægt að lesa hér.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira