Brenndu tvö göt á görn í aðgerð 26. mars 2011 04:00 Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu konunnar.
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af sjö milljóna skaðabótakröfu konu sem lenti í því að tvö göt voru brennd á görn hennar í ófrjósemisaðgerð á spítala. Ófrjósemisaðgerðin fór fram með þeim hætti að brennt var fyrir eggjaleiðarana. Önnur aðferð og hættuminni er möguleg í sama tilgangi og felst hún í því að klemma fyrir eggjaleiðarana. Konan fór í aðgerðina í nóvember 2002 og var útskrifuð síðar sama dag. Tíu dögum síðar var hún aftur lögð inn, mikið veik og komin með lífhimnubólgu. Hún fór í aðgerð þar sem götin á görninni komu í ljós. Var garnabútur fjarlægður og endarnir saumaðir saman. Árið 2003 þurfti hún aftur að leggjast á spítala vegna garnastíflu. Konan vildi sækja bætur vegna saknæmrar og ólöglegrar háttsemi en bótaskyldu ríkisins var vísað á bug og fór málið því fyrir dómstóla. Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars að ekki hafi verið um saknæmt gáleysi að ræða er rafmagnstöngin rakst í garnir konunnar, heldur „sjaldgæft óhappatilvik“. Þá hefði konunni mátt vera fullljóst í hverju aðgerðin væri fólgin og hvaða afleiðingar hún gæti haft, þar sem hún hefði ritað undir eyðublað þar að lútandi.- jss
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira