Fréttaskýring: Hvaða aðgerða ætlar ESB að grípa til? 26. mars 2011 18:15 Eldar loguðu í Brussel í gær, kveiktir af mótmælendum meðan leiðtogafundurinn stóð yfir. Slökkviliðsmenn voru mættir til vinnu en regnið virðist hafa hjálpað eitthvað til.fréttablaðið/AP
Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær heildarreglur um björgun evruríkja úr efnahagsvanda. Þeir segja nýju reglurnar marka tímamót, en stjórnarkreppa í Portúgal varpaði skugga á leiðtogafundinn í Brussel sem lauk í gær. Leiðtogar Evróupsambandsins hafa samþykkt aðgerðir, sem eiga að tryggja stöðugleika á evrusvæðinu þrátt fyrir efnahagsvanda einstakra ríkja. Aðgerðirnar fela annars vegar í sér nýjan neyðarsjóð með 500 milljörðum evra, eða ríflega 80.000 milljörðum króna, sem á til frambúðar að taka við af bráðabirgðasjóðnum, sem settur var á stofn á síðasta ári. Hins vegar fela þær í sér strangari reglur um samstarf í efnahagsmálum til að tryggja meiri aga í ríkisfjármálum og örva jafnframt hagvöxt. Reglurnar ná til evruríkjanna sautján og sex annarra Evrópusambandsríkja, þar á meðal Danmerkur, sem ákvað að vera með. Fjögur ESB-ríki standa þó áfram utan við þetta samstarf, þar á meðal Bretland og Svíþjóð. Leiðtogarnir sögðust ánægðir með niðurstöðuna, sem hefur kostað töluverð innbyrðis átök. „Evrópa hefur gert nákvæmlega það sem gera þurfti,“ sagði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti, hróðugur mjög. „Ég sé ekki hvað við hefðum getað gert meira á þessu stigi, sem þýðir þó ekki að innan fárra mánaða verðum við ekki með nýjar hugmyndir í handraðanum.“ Fjárhagsvandræði Portúgals og afsögn ríkisstjórnarinnar þar í landi nú í vikunni varpaði þó skugga á leiðtogafundinn í Brussel. Jose Socrates forsætisráðherra sagði af sér á miðvikudagskvöld eftir að þingið í Portúgal hafnaði sparnaðaraðgerðum, sem stjórnin hugðist fara út í til að styrkja efnahagslífið. Í gær tók þingið í Portúgal ákvörðun um að efna til kosninga frekar en að mynda nýja ríkisstjórn undir forystu stjórnarandstöðunnar. Portúgal hefur þó ekki enn tekið ákvörðun um að leita til Evrópusambandsins um hjálp út úr efnahagsvandanum, sem orðinn er afar knýjandi. Leiðtogar Evrópusambandsins segjast þó sannfærðir um að geta hjálpað Portúgal út úr vandanum, gerist þess þörf, með svipuðum hætti og þeir komu Írlandi og Grikklandi til bjargar. „Ef Portúgal biður um hjálp verður að reikna með því að það gerist fljótlega, og að þá muni björgunarvarnirnar duga til,“ sagði Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, en hann er helsti talsmaður leiðtoga evruríkjanna.gudsteinn@frettabladid.is
Tengdar fréttir Finnar tefja afgreiðslu Evrópusambands Ein stærsta snurðan sem hljóp á þráð leiðtogafundar Evrópusambandsins stafar af tregðu finnsku stjórnarinnar til að fallast á aukna fjárhagslega ábyrgð Finnlands á hugsanlegum aðgerðum til bjargar evruríkjum í vanda. 26. mars 2011 07:30 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Sjá meira
Finnar tefja afgreiðslu Evrópusambands Ein stærsta snurðan sem hljóp á þráð leiðtogafundar Evrópusambandsins stafar af tregðu finnsku stjórnarinnar til að fallast á aukna fjárhagslega ábyrgð Finnlands á hugsanlegum aðgerðum til bjargar evruríkjum í vanda. 26. mars 2011 07:30