Heiðra minningu Sjonna: Hann batt okkur alla saman 29. janúar 2011 13:15 Sex vinir Sigurjóns ætla að flytja lagið hans, Aftur heim, sem eiginkona hans, Þórunn Erna Clausen, gerði textann við. Þetta eru þeir Hreimur Örn, Vignir Snær, Benedikt Brynleifsson, Matthías Matthíasson, Gunnar Ólason og Pálmi Sigurhjartarson. Mynd/Anton „
Sjonni var mjög spenntur fyrir því að taka þátt, hann hafði lagt mikla vinnu í lagið sitt ásamt Vigni Snæ. Hann hlakkaði mikið til að keppa með það," segir Hreimur Örn Heimisson tónlistarmaður. Eins og fram hefur komið lést tónlistamaðurinn Sigurjón Brink langt fyrir aldur fram á heimili sínu í síðustu viku. Hann hafði komið lagi að í Söngvakeppni Sjónvarpsins og um tíma ríkti óvissa um hvort lagið, sem kallast Aftur heim, yrði flutt í keppninni. Að endingu tók fjölskylda Sigurjóns þá ákvörðun að halda laginu inni í keppninni og keppir það í kvöld. Sex nánir vinir Sigurjóns munu flytja það: Hreimur, Vignir Snær Vigfússon, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Pálmi Sigurhjartarson og Matthías Matthíasson. Lagið sjálft er eftir Sigurjón en textann gerði eiginkona hans, Þórunn Erna Clausen. Hreimur segir að Þórunn hafi hringt í hvern og einn þeirra og spurt hvort þeir treystu sér til að flytja lagið í keppninni. Hreimur var aldrei í neinum vafa hvert svar hans væri.„Allar vangaveltur og pælingar um keppni eru okkur víðsfjarri. Við viljum bara heiðra minningu Sigurjóns með þessum hætti og flytja það eins vel og við getum. Sigurjón batt okkur alla saman, hann var vinur svo margra og miðjan í þessum hópi. Við lítum allir svo á að enginn komi í staðinn fyrir Sigurjón, við erum allir vinir hans og viljum halda merki hans á lofti. Svo sjáum við bara til, það er enginn með neina háleita drauma." Hreimur segir síðustu tvær vikur hafa verið ákaflega erfiðar, þær hafi liðið eins og tvö ár. „Þetta hafa verið þung spor og jarðarförin hans var einn af þessum áföngum til að hjálpa okkur að klára þetta og gera andlát hans upp. Við höfum oft grínast með það tónlistarmennirnir að við horfum ekkert of mikið til baka því við erum svo uppteknir af því sem er að gerast á morgun. Þessar tvær vikur hafa kennt manni að maður á að njóta þess að vera til og forgangsraða rétt. Sigurjón var með sína forgangsröðun á hreinu, hann fékk bara ekki tíma til að klára sitt." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira